Dómur yfir Ming Ting Mancel hefur verið birtur en hún var dæmd í tólf ára fangelsi fyrir að bana Catherine, dóttur sinni, í samráði við eiginmann sinn, Emeric Mancel. Við förum yfir dóminn. Þá fjöllum við um stöðuna í Vestmannaeyjum og fyrir norðan nú þegar verslunarmannahelgin er komin á fullt skrið.
Sveitarstjóri Dalabyggðar segir ástand vega vestur í Dali vera hræðilegt. Hann segir stofnveg sem ekið er um til Vestfjarða nánast ófæran á köflum og tímaspursmál sé hvenær alvarlegt slys verði.
Einnig kynnum við okkur nýja sýningu þar sem munum sem voru í eigu Gísla á Uppsölum hefur verið safnað saman.