Húsnæði stofnunarinnar á Selfossi er löngu orðið sprungið og miklir erfiðleikar eru við að finna eitthvað laust pláss fyrir aukna starfsemi.
Forstjóri stofnunarinnar kynnti m.a. þær miklu framkvæmdir sem stendur nú til að ráðast í á síðasta ársfundi, sem haldin var á Hótel Selfossi.
„Og nú hefur verið samþykkt að fara af stað bæði með endurbætur og viðbyggingu. Viðbyggingin upp á 5.200 fermetra, þannig að það mun nú aldeilis muna um það. Fyrsti áfangi er að farinn af stað og er fullfjármagnaður þannig að nú bíðum við bara eftir því að hefjast handa,” segir Díana Óskarsdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
Díana segir að það hafi verið barist fyrir því í mörg ár að stækka húsakostinn á Selfossi og nú sé það loksins komið. Þegar framkvæmdir hefjast verður hjúkrunardeildinni Ljósheimum, þar sem eru 20 hjúkrunarrými, lokað og starfsemi heilsugæslunnar færð þangað en engar breytingar verða á rekstri Fossheima, sem er líka í húsinu. Íbúum Ljósheima verður boðinn flutningur á annað hjúkrunarheimili en þar koma til greina hjúkrunardeildin Fossheimar, hjúkrunarheimilið Móberg og hjúkrunarheimilið Ás í Hveragerði eða annað hjúkrunarheimili í samráði við óskir íbúa.
En hverju mun stækkunin á Selfossi breyta?
„Þetta mun breyta bara gríðarlega miklu. Við erum náttúrulega, starfsemin er bara þannig að við erum að slást um hvern einasta fermeter inni í húsinu núna. Við erum t.d. með geðheilsuteymið niðri í kjallara í hálf gluggalausum og litlum rýmum og við bara sjáum fram á það að þetta verði bara allt annað að halda utan um starfsemina í breyttu húsnæði,” segir Díana.
En hver er heildarkostnaður við framkvæmdina?
„Hann er svona kannski í kringum 10 milljarða plús mínus, eitthvað svoleiðis, ef þetta verður gert í þremur áföngum og við erum að byrja í fyrsta áfanga núna,” segir Díana.
Sá áfangi á að klárast um mitt ár 2027 gangi allt eftir.
Þá má geta þess að undirskriftarlisti hefur verið í gangi á Island.is þar sem því er mótmælt að Ljósheimum við Heilbrigðisstofnunina á Selfossi verði lokað í kjölfar nýju framkvæmdanna en þar eru 20 hjúkrunarrými. 440 manns hafa skrifað sig á listann.