Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair.„Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið fjölda afbókana og fyrirspurna um niðurfellingu, endurgreiðslu og frestun ferða og neikvæð áhrif eru því þegar hafin. Alvarleg röskun á allri virðiskeðju atvinnugreinarinnar blasir við verði verkfallið að veruleika,“ segir í frétt á vef Samtaka ferðaþjónustunnar.
Vara við milljarðatjóni á örfáum dögum og kalla eftir inngripi stjórnvalda