Tveir ólöglegir innflytjendur frá Afganistan hafa verið sakfelldir fyrir að nauðga konu í almenningsgarði í austurhluta Lundúna. Konan var þar á fyrsta stefnumóti með manni sem hún hafði kynnst í gegnum stefnumótaforrit. Þeir héldu hnífi að hálsi mannsins á meðan svo hún myndi ekki kalla á hjálp.
Árásin átti sér stað í Barking Park um klukkan ellefu að kvöldi 16. ágúst í fyrra. Konan og maðurinn lágu saman í grasinu og horfðu á stjörnurnar þegar mennirnir tveir gengu að þeim.
Þeir yfirbuguðu parið og sögðu að þeir vildu „bara skemmta sér aðeins með henni“.
Hélt hnífi að hálsi mannsins
Noorullah Ahmdzai, 26 ára, nauðgaði konunni á meðan hinn maðurinn, Afghani Khan Agah, hélt hnífi að hálsi mannsins sem hún var með og hótaði að drepa hann ef hann kallaði á lögreglu.
Mennirnir skiptu síðan um hlutverk og Agah nauðgaði konunni á meðan Ahmdzai ógnaði manninum með hnífnum.
Saksóknari sagði mennina hafa komið fram við konuna eins og hlut sem þeir gætu notað og misnotað að vild.
DNA tengdi mennina við árásina
DNA sýni sem fundust á fatnaði konunnar voru aðal sönnunargögn málsins.
Ahmdzai hélt því fram fyrir dómi að konan hefði sjálf boðið þeim kynlíf gegn 20 punda greiðslu. Kviðdómur hafnaði þeirri frásögn og sakfelldi báða mennina.
Þeir voru fundnir sekir um tvær nauðgunir hvor, hótanir með hnífi, kynferðislegt ofbeldi og frelsissviptingu.
Þeir verða dæmdir til refsingar í október og hefur dómari þegar varað við því að þeir eigi yfir höfði sér langa fangelsisdóma.
Báðir komu ólöglega til Bretlands
Ahmdzai kom til Bretlands á gúmmíbát yfir Ermarsund í ágúst 2023. Hann var fyrst vistaður á hóteli á vegum breska innanríkisráðuneytisins þar sem hann lifði í vellystingum á kostnað skattgreiðenda en hælisumsókn hans var síðar hafnað. Hann var þó áfram í landinu á meðan áfrýjun hans var til meðferðar.
Agah kom einnig ólöglega til Bretlands en ekki hefur komið fram með hvaða hætti hann komst til landsins.