Tveir fórust þegar þyrlur skullu saman við slökkvistörf í Aþenu í dag. Miklir skógareldar hafa kviknað víða og breiðast hratt út vegna mikils hvassviðris. Þúsundir hafa þurft að yfirgefa heimili sín.
Flugmaður annarar þyrlunnar var danskur ríkisborgari og fórst hann ásamt grískum slökkviliðsmanni.
Þyrlurnar voru notaðar við slökkvistörf vestur af höfuðborginni Aþenu þegar þær skullu saman. Tveir voru í hvorri þyrlu, breskur þyrluflugmaður og grískur slökkviliðsmaður komust lífs af. Þrír slökkviliðsmenn létust við slökkvistörf í síðustu viku.
Kyriakos Mitsotakis forsætisráðherra Grikklands sagði í dag að veðurskilyrði yrðu áfram óhagstæð og næstu dagar mjög erfiðir. Þrír slökkviliðsmenn létust við slökkvistörf í síðustu viku.