„Þarna lauk viðskiptasambandi mínu við Krónuna“

JÁvaxtabar Krónunnar vekur mikla athygli. Nafnabreytingin og ný hönnun á ávaxtamarkaðnum vöktu upp umræðu á samfélagsmiðlum þar sem sumir viðskiptavinir tengdu orðið „JÁ“ við umræðuna um Evrópusambandið. Krónan breytti nafni ávaxtamarkaðarins í JÁvaxtabarinn og segir breytinguna eingöngu snúast um að hvetja fólk til að segja „já“ við ávöxtum á hverjum degi.
Ekki eru allir jafn sáttir við þessar breytingar og segir Hanna Þurý Ólafsdóttir inni í hópnum Ísland, þvert á flokka að hún ætli sér ekki að eiga aftur viðskipti við Krónuna.
„Þarna lauk viðskiptasambandi mínu við Krónuna.
Ég á stóra fjölskyldu og við höfum verslað nær allar okkar matvörur í Krónunni í mörg ár. Þangað til núna.
Verslun sem þjónar fólki með ólíkar skoðanir ætti að halda sig utan pólitískra deilna.
Fyrirtæki hafa vissulega rétt á að tjá sig. En viðskiptavinir hafa líka rétt á að velja hvert þeir fara með peningana sína.
Ég kýs að versla þar sem allir viðskiptavinir eru velkomnir, óháð pólitískum skoðunum. Þess vegna verða mín viðskipti færð annað.
Ef fleiri eru ósáttir við að matvöruverslun sé notuð sem vettvangur fyrir pólitísk skilaboð, þá er einfaldasta leiðin að fara annaði. Fyrirtæki hlusta þegar viðskiptavinir kjósa með veskinu.“
Lína Rut Wilberg tekur í sama streng og segir þetta sorglegt.
„Ótrúlega sorglegt, hef verslað mikið þarna, geri það ekki fyrr en þetta skilti verður fjarlægt.“