Myndir hafa borist af slökkviliðsmönnum og sjúkraflutningamönnum að störfum við brak annarrar þyrlunnar sem hrapaði. Báðir þeir sem um borð voru í þessari sem hér sést eru látnir.
Á myndunum sést reykur stíga upp af þyrluflakinu sem er sviðið.
Þeir tveir sem um borð voru í hinni þyrlunni eru lifandi og voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar.