Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Glæsilegir í IceGuys partýi
Leikarinn og þjónninn Aaron Soriano fer með hlutverk í IceGuys kvikmyndinni og lét sig ekki vanta á hátíðarforsýninguna. Hann kíkti svo í eftirpartýið með hópnum og pósaði með ísgæjanum Rúriki Gíslasyni.
Sáttir með tímamótin
Og IceGuys-arnir Rúrik Gíslason, Friðrik Dór Jónsson, Jón Ragnar Jónsson, Árni Páll Árnason og Aron Can voru glæsilegir á forsýningu IceGuys. Stór tímamót í lífi sveitarinnar.
Ráðherrar sem Ísstrákar
IceGuys virðast veita öllum kynslóðum landsins innblástur. Karlráðherrar ríkisstjórnarinnar brugðu á leik á árshátíð Stjórnarráðsins á föstudag og klæddu sig upp í fangagalla með tilvísun í strákasveitina Iceguys.
Blóðug Carrie
TikTok-stjarnan og förðunarfræðingurinn Embla Wigum klæddi sig upp sem karakterinn Carrie úr samnefndri költ-bíómynd frá árinu 1976. Embla kann betur en flestir að gera raunverulega óhugnanlega förðun!
Sama mynd með níu ára millibili
Ofurhjónin Viktoría Hermannsdóttir, dagskrárgerðarkona á Rúv, og Sóli Hólm, uppistandari og leikari, fóru til Edinborgar í rómantíska ferð og tóku nákvæmlega eins mynd og þau höfðu gert níu árum fyrr.
Frelsuð og blessuð að fá að vera fáklædd
Söngkonan og samfélagsmiðlastjarnan Unnur Borg var frelsinu fegin og fagnaði því að fá að vera fáklædd.
Drekadrottningin
Hlaðvarpsstýran og áhrifavaldurinn Brynhildurn Gunnlaugsdóttir klæddi sig upp sem drekadrottningin Khaleesi úr Game Of Thrones-þáttaseríunni.
Skellibjalla sem átti afmæli
Áhrifavaldurinn Christel Ýr fagnaði afmæli yfir Hrekkjavöku-helgina og klæddi sig upp sem Skellibjalla úr Pétri Pan.
Bríet djöfullinn í Hollywood
Tónlistarkonan Bríet fagnaði Hrekkjavöku í Hollywood í ár og klæddi sig upp sem blóðugur djöfull. Hún heimsótti Galdrakastalann eða The Magic Castle, sem er frægur einkaklúbbur í Los Angeles þar sem töframenn koma saman.
Nornastemning í Teboðinu
Hlaðvarpsstýran, raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir málaði sig græna og var Wicked-karakterinn Elphaba fyrir þátt af Teboðinu, sem er hlaðvarp hennar og Birtu Lífar Ólafsdóttur en Birta klæddi sig upp í sama búning.
Patrekur Jaime í Disney myndum
Raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime fer allaf alla leið á Hrekkjavökunni og tekur fyrir þema á hverju ári. Nú valdi hann Disney-karaktera og klæddi sig meðal annars upp sem undirheimagoðsagnaveran Hades úr Herkúles.
Stjörnustríðsfjölskylda
Verkfræðingurinn Katrín Edda var flott sem Lea Prinsessa úr Stjörnustríðskvikmyndunum en hún og fjölskylda hennar klæða sig upp í því þema á ári hverju.
Engill
Poppstjarnan Alaska klæddi sig upp sem engil í myndaþætti fyrir skemmtistaðinn Auto.
Álfaprinsessa
Áhrifavaldurinn Rósa Kristín skellti vængjum á sig og var álfaprinsessa fyrir Hrekkjavökuna.
Stelpustuð
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, utanríkisráðherra og borgarstjóri í Reykjavík, skellti sér til Brussel í sannkallaða skvísuferð.