Fleiri nöfn voru skráð á spjöld sögunnar eftir að atkvæði voru talin víða um Bandaríkin. Má þar meðal annars nefna fyrsta opinberlega samkynhneigða manninn í öldungadeildinni og fyrstu konuna af frumbyggjaættum til að verða ríkisstjóri.
Hin 56 ára Bottoms er fyrrverandi borgarstjóri Atlanta, höfuðborgar Georgíu, ríkis sem mótast hefur af arfleifð þrælahalds, aðskilnaðarstefnu og baráttu fyrir borgaralegum réttindum. Greint er frá þessu í frétt AP-fréttaveitunnar en hún sigraði Rick Jackson, milljarðamæring og viðskiptamann sem var fulltrúi Repúblikanaflokksins í ríkinu.
Fyrsti opinberlega samkynhneigði maðurinn í öldungadeild
Á sama tíma í New Mexico varð Deb Haaland fyrsta konan af frumbyggjaættum til að verða kjörin ríkisstjóri í Bandaríkjunum og Byron Donalds verður fyrsti þeldökki ríkisstjóri Flórídaríkis fyrir Repúblikana.
Demókratinn Chris Pappas sigraði John E. Sununu í New Hampshire og verður fyrsti opinberlega samkynhneigði maðurinn í öldungadeild Bandaríkjaþings. Þar með hélt Pappas sætinu í höndum Demókrata en ríkið hefur ekki sent Repúblikana á þingið frá árinu 2010.
Eftir kosningar í gær verður Peggy Flanagan sömuleiðis fyrsta konan af frumbyggjaættum til að taka sæti í öldungadeildinni en hún sigraði Repúblikanann Michele Tafoya sem starfaði sem íþróttafréttamaður.
Þá gæti Demókratinn Mary Peltola orðið fyrsti öldungadeildarþingmaðurinn kominn af frumbyggjum Alaska ef hún heldur naumu forskoti sínu á Dan Sullivan.
Einnig eru allra augu á Michigan þar sem Abdul El-Sayed gæti orðið fyrsti músliminn til að taka sæti í öldungadeild þingsins. Hann er með rúmlega fimm prósentustiga forskot á höfuðandstæðing sinn Mike Rogers þegar 75 prósent atkvæða hafa verið talin. Sjálfur hefur hann lýst yfir sigri en AP-fréttaveitan hefur ekki viljað ganga svo langt.