Fimm skipverjar Bandero hafa verið kallaðir á fund lögreglu og verið tilkynnt um brottvísun og endurkomubann. Útlendingastofnun vinnur að ákvörðunum um brottvísanir og óvíst er að ákvörðun náist í máli allra skipverjanna í dag.
Lögregla hefur kallað skipverjana á fund einn af öðrum í kvöld. Þar er þeim kynnt ákvörðun um að þeir séu frjálsir ferða sinna, en skuli sinna tilkynningaskyldu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Útlendingastofnun staðfest brottvísun allra þeirra sem þegar hafa farið á fund lögreglu.
Skipverjarnir fá einnig endurkomubann, mislangt eftir því hvaðan þeir koma.
Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að ríkislögreglustjóri muni sjá um framkvæmd brottvísananna.
Lögreglan hafði gert skipverjunum að vera um kyrrt í skipinu en einn skipverjinn kærði ákvörðunina. Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti ákvörðunina í dag og lögregla ákvað að eitt skyldi yfir alla ganga og birtir skipverjunum því nýja ákvörðun um tilkynningaskyldu.
21 skipverji er um borð í Bandero. Fréttastofa náði tali af einum þeirra, sem kvaðst heita Aaron en vildi ekki gefa upp eftirnafn. Hann sagði að skipverjarnir væru frjálsir ferða sinna frá og með deginum í dag en þyrftu að tilkynna sig á lögreglustöð á hverjum degi.
Spurður hvort skipverjarnir hefðu fengið eigur sínar til baka sem lögregla lagði hald á sagði hann að þau hefðu ekki fengið raftækin sín aftur, sem væri mjög íþyngjandi og gerði að verkum að þau ættu erfitt með að hafa samband við vini og fjölskyldu.
Ásgeir Þór segir að skipverjarnir hafi ekki verið samvinnuþýðir við rannsókn lögreglu og að farið verði fram á heimild til að skoða raftæki skipverjanna.
Aaron sagði að leiðangur Bandero væri ekki misheppnaður þrátt fyrir að skipinu hafi ekki tekist áætlunarverk sitt: að stöðva hvalveiðar Hvals hf. Hann sagði að tekist hefði að hægja á veiðunum og vekja athygli á málstaðnum.