Fjórar úkraínskar flugvélar á vegum fyrirtækisins Antonov voru nærri þar sem dróninn fannst, samkvæmt frétt Spiegel.
Auk þess að umræddur dróni fannst á flugvellinum var flugvél frá DHL flogið á einhvern hlut skömmu eftir flugtak frá honum í gærkvöldi. Óljóst er hvort sá hlutur hafi verið sami dróninn eða annar.
Þýski miðillinn Bild segir að varnarkerfi flugvallarins hafi greint tvo dróna í gærkvöldi. Þá segir miðillinn að yfirvöld telji að um árásartilraun sé að ræða. Rannsakendur Atlantshafsbandalagsins eru sagðir koma að málinu.
A drone carrying an unknown substance and a detonator, suspected to be explosives, was discovered by staff parked immediately next to a Ukrainian Antonov transport aircraft at Leipzig/Halle airport in Germany pic.twitter.com/vhrW430xCk
— Faytuks Network (@FaytuksNetwork) August 5, 2026
Umræddur flugvöllur er mikið notaður til fragtflugs og til hergagnaflutninga til Úkraínu. Árið 2024 kviknaði eldsprengja um borð í gámi á flugvellinum. Það er talið hafa verið ráðabrugg rússneskra útsendara, sem hafa verið sakaðir um skemmdarverk og jafnvel morðtilræði víða í Evrópu.
Sjá einnig: Sviptu hulunni af skósveinum GRU sem sendu sprengjur í flugvélar
Flugvellinum var lokað vegna drónanna í nótt og flugvélum beint annað. Þar á meðal eru farþegaflugvélar.
Fjölmiðlar í Þýskalandi segja að dróninn sem fannst hafi verið greindur af sérfræðingum og hann hafi borið sprengju og hvellettu. Það mun hafa verið hvellettan sem bilaði, samkvæmt frétt DW. Upprunalega stóð til að granda drónanum með sprengju en hætt var við það.