Góðan dag og velkomin í þessa fréttavakt vegna samnings Bandaríkjanna og Danmerkur um Grænland. Bandaríkjaforseti tilkynnti um samninginn í gærkvöld á samfélagsmiðli sínum. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, staðfesti hann stuttu síðar.
Bandaríkjaforseti hefur lengi verið ásælinn í Grænland og stöðugt lýst því yfir síðustu mánuði. Það hefur gert samband Bandaríkjanna og Danmerkur stirt og valdið miklum áhyggjum og ótta meðal Grænlendinga.
Margt er enn á huldu um samninginn og mörg smáatriði sem eiga enn eftir að koma í ljós.
Ég heiti Ingibjörg Sara og ætla að fylgja ykkur lesendum í dag þar sem við greinum frá öllu því helsta er tengist þessu máli og viðbrögðum bæði í útlöndum og hér heima.