Amy Todd, 35 ára tveggja barna móðir frá Glasgow í Skotlandi, hafði í níu ár safnað upp neysluskuldum sem námu um 15 þúsund pundum, jafnvirði rúmlega 2,5 milljóna íslenskra króna.Þrátt fyrir ágætar heimilistekjur hafði hún misst tökin á fjármálunum og skuldaði á sex kreditkortum auk þess að vera með skuldir hjá nokkrum verslunum og greiðsluþjónustum.Í umfjöllun Daily Mail segir Amy frá því hvernig henni tókst að greiða niður allar skuldirnar með því að breyta daglegum venjum sínum og fylgja sjö einföldum reglum.
Safnaði milljónum í kreditkortaskuldir: Sjö einfaldar reglur hjálpuðu henni úr skuldasúpunni