Greint verður frá nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þar sem fram kemur að fasteignamarkaðurinn kólnar enn og kaupsamningar um fyrstu fasteign hafa verið færri en síðustu ár. Yfirhagfræðingur segir hlutfall íbúða sem seljast á undir ásettu verði vera sérlega hátt þessa dagana.
Talsmenn bæði félags múslima á Íslandi og rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar hér á landi segjast alfarið koma af fjöllum hvað varðar áform Reykjavíkurborgar um að afturkalla lóðarúthlutun til trúfélaganna. Félögin segja ekkert erindi hafa borist frá borginni. Á fundi borgarráðs verða teknar fyrir afturkallanir á lóðum til trúfélaganna.
Dæmi eru um að sendlar hjá Wolt á Íslandi hafi lánað hvor öðrum kennitölur og hafi ekki atvinnurréttindi, samkvæmt heimildum fréttastofu. Sendlarnir lögðu niður störf í gær og segja laun sín hafa lækkað um fjörutíu prósent. Forseti ASÍ segir starfsemina hvorki standast lög né reglur í launamálum.
Þetta og margt fleira í hádegisfréttum Bylgjunnar. Umsjónarmaður er Telma Tómasson.