Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir nýjan meirihluta borgarstjórnar hafa farið offari í niðurskurðaraðgerðum sínum og meðal annars lagt niður verkefni sem hafi skilað borginni umtalsverðum fjárhagslegum ávinningi. Hann segir ekkert neyðarástand ríkja í fjármálum borgarinnar sem réttlæti jafn harkalegar aðgerðir.Þetta kemur fram í tilkynningu Samfylkingarinnar þar sem vitnað er til ræðu Péturs á fundi borgarstjórnar í dag, þar sem fjárhagsáætlun næsta árs var til fyrri umræðu.
Pétur segir meirihlutann hafa skorið niður verkefni sem skiluðu borginni peningum