Nærri hálfri öld eftir að lík óþekktrar konu fannst í almenningsgarði í New York-ríki hafa bandarískir rannsakendur loksins komist að því hver hún var.Ný DNA-tækni hefur varpað ljósi á 48 ára gamla ráðgátu og nú beinist athygli lögreglu að alræmdum raðmorðingja sem myrti að minnsta kosti sex manns. Konan sem fannst hét Sofia Margherita Marrone en hafði um áratugaskeið aðeins verið þekkt sem „Montauk Mary“, eftir staðnum þar sem lík hennar fannst árið 1978.
Óþekkt kona fannst myrt árið 1978 – Nú beinist grunur að alræmdum raðmorðingja