Í færslunni fylgir texti þar sem hún segir Ísland vera fallegt og ferðin einstök. „Við elskum ykkur, Ísland!!“
Fyrr í vikunni birti Kidman mynd af sér í miðbæ Akureyrar og þá var sagt frá því að hún hefði verið stödd á Snæfellsnesi þegar almyrkvinn stóð yfir.
Leikkonan á langan og glæstan feril og hefur meðal annars leikið í myndum á borð við Moulin Rouge, Eyes Wide Shut, The Hours, Babygirl og The Others, auk þáttaraða á borð við Big Little Lies.