„Það er mjög lítið að frétta sem er gott,“ segir Hilmar.
Bænum berast enn alls kyns tilkynningar en aðeins í tilfelli þriggja þeirra er talið að um minka af Dalbúi sé að ræða. Þá hafi enginn minkur komið í gildrur sem settar hafi verið upp í Mosfellsdal síðasta sólarhringinn.
Tilkynningar hafi þó borist víða frá, utan af Granda í Reykjavík og úr Vestmannaeyjum. Þótti ekki trúverðugt að þar væri um að ræða minka af Dalbúi.
„Við erum á vaktinni og viljum fá allar ábendingar,“ ítrekar Hilmar. „En við getum ekki tekið að okkur minkaátak á landsvísu.“
Hilmar segist að lokum vera þakklátur þeim sem komið hafa að verkefninu og hve skjótt hefur gengið að leysa úr málum.