Mikill erill hefur verið hjá lögreglunni á Akureyri um verslunarmannahelgina. Í tilkynningu sem birt var í morgun kemur fram að 86 mál eru skráð í kerfi lögreglunnar síðasta sólarhring. Fimm gistu fangageymslur, þar af einn vegna grófrar líkamsárásar og er það mál í rannsókn. Einnig þurfti lögregla að hafa afskipti af börnum í sjö tilvikum.Tilkynningin er eftirfarandi: „Verslunarmannahelgi, mánudagsmorgun
Mikill erill hjá lögreglunni á Akureyri – Maður handtekinn vegna grófrar líkamsárásar