Í fjölmiðlum í gær var fjallað um skiptalok þrotabúa tveggja félaga sem ráku veitingastaði í Smáralind. Engar eignir fundust í búunum og fékkst ekkert upp í lýstar kröfur. Annað félaganna var OL Restaurant & Sportbar ehf. sem rak veitingastaðinn Sport&Grill. Lýstar kröfur voru tæplega 170 milljónir króna en megnið af þeim kröfum gerðu fyrrverandi eigendur staðarins, þeir Elís Árnason og Þórhallur Arnórsson, í gegnum félagið Grand ehf.
Málaferli út af Adesso Cafe og Sport & Grill: Segja samninga svikna um leið og blekið var þornað á þeim