Maður labbar ekki fram hjá Evrópufána á hverjum degi og segir takk
Kristof Magnússon er þekktur rithöfundur og leikskáld sem á þýska móður og íslenskan föður. Hann hefur búið í Þýskalandi frá blautu barnsbeini, sem barn í Hamborg og fullorðinn í Berlín, en er vel kunnugur á Íslandi og talar íslensku. Hvernig ætli hann upplifi að búa í landi innan Evrópusambandsins?
Kristof, sem hefur þýtt fjölda íslenskra bókmenntaverka yfir á þýsku, er sjálfur nýbúinn að vera með nýjasta skáldverk sitt, Die Reise ans Ende der Geschichte, á metsölulista Der Spiegel, bók sem hefst í partíi í rússneska sendiráðinu í Róm stuttu eftir að Berlínarmúrinn féll. Sem þekktur höfundur í þýsku samfélagi, vel að sér í stjórnmálunum og samfélagsumræðu, má segja að hann sé gjörkunnugur því. Þessa dagana er hann stöðugt á ferðinni á hinu þýskumælandi svæði þessa dagana að lesa upp úr vinsælli bók sinni. Þó næst í skottið á honum sem staldrar við á milli lesta til að velta þessu fyrir sér.

Öðruvísi fyrir land sem er eyja
Hann telur að margt sé náttúrlega öðruvísi við að búa í Þýskalandi en á Íslandi. „Sagan …