Kristrún veit ekki að Ísland er dyragætt Ameríku og Evrópu

Hallur Hallsson skrifar:
Íslendingar eru með forsætisráðherra Kristrúnu Frostadóttur sem þekkir ekki stöðu Íslands á landakorti. Þekkir ekki lykilstöðu Íslands á Norðurslóðum. Greinir ekki tækifæri Íslendinga. Hún þekkir hvorki sögu Íslands né sögu heimsmála; geo-pólitíska stöðu Íslands. Forseti Bandaríkjanna “…ergir hana”. Hún hyggst taka Trump á teppið í New York líkt og Togga tók sendiherra Bandaríkjanna á teppið. Hún segir að “…skilaboð berist frá Bandaríkjunum yfir í okkar heimshluta…”. Hún veit ekki að Ísland er dyragætt Ameríku og Evrópu sem er einn helsti styrkleiki íslenskrar þjóðar út við ysta haf Norðurslóða. Ísland er í þjóðbraut milli heimsálfa. Kristrún dælir tugum milljarða styrjöld í Úkraínu í 4.500 kílómetra fjarlægð. Hún sendir Úkrum vopn til þess að berjast við Rússa í þágu útþenslu Esb. Hún vill innlima Ísland í gömul nýlenduveldi Evrópu sem mergsugu íslenska þjóð. Kristrún þekkir ekki 682 ára sögu Íslendinga undir útlendu nýlenduvaldi. Kristrún er talsmaður Esb sem hefur komið sér upp 5tu herdeild íslenskra embættismanna og pólitíkusa með milljarða fjáraustri. Kristrún er þjóðhættuleg á örlagatímum.
Íslendingar í þjóðbraut á milli heimsálfa
Ísland fór inn á áhrifasvæði USA með komu bandarísks herafla í júlí 1941. Þá geisaði heimsstyrjöld í Evrópu 1939-1945. Bandaríkin veittu Íslandi hervernd. Í kjölfarið fylgdi mesti uppgangur í sögu Íslands. Sjálfstæði 1944, varnarsamningur 1951. Ísland komst í þjóðbraut Ameríku og Evrópu. Við unnum þorskastríðin 1952-1976, virkjuðum fallvötnin, beisluðum háhita. Ferðaþjónusta og hugverkageiri sprungu út. Öllu þessu stefnir Kristrún í tvísýnu. Ísland/Esb eru í stríði við Rússland og hún lítur á Bandaríkin sem ógn. Hún styður danska konungsríkið við að koma í veg fyrir sjálfstæði Grænlands. Kristrún styður tilraunir Esb við að innlima Grænland. Grænlendingar sögðu nei.Forseti framkvæmdastjórnar Esb fór bónleið til búðar í Nuuk. Ríkis-rúv þegir og þaggar. Kristrún er teymd áfram af Þorgerði Katrínu, ógæfusamasta stjórnmálamanni íslenskrar sögu sem flestu tortýmir sem hún kemur nálægt; kúlulánið og 75 milljarðar til húsbænda eiginmannsins í Kaupþingi 2008 og ofsóknir á hendur Vélfagi 2025 sem enn standa yfir. Ísland fullvalda og frjálst ásamt Grænlandi eiga að rækta góð samskipti við Bandaríkin og Evrópu.
Eiginmaður Kristrúnar er hagsmunavörður í Brussel fyrir eistnesk sjávarútvegsfyrirtæki en ríkis-rúv þegir og þaggar. Svona er Ísland í dag