Ítalska parið á bak við YouTube „ferða“rásina STEPSOVER er komið til Íslands þar sem það hyggst verja næstu fjórum mánuðum í húsbílnum sínum og ferðast um landið.
Rásin er með um 367 þúsund áskrifendur og fyrstu tvö myndböndin frá Íslandsferðinni hafa þegar fengið tugþúsundir áhorfa.
Parið kom með Norrænu til Seyðisfjarðar og í fyrsta myndbandinu má fylgjast með fyrstu kynnum þeirra af íslenskri náttúru, snæviþöktum fjöllum, frosnum vötnum og síbreytilegu veðri. Ferðin lá meðal annars til Borgarfjarðar eystri þar sem þau fóru að sjá lunda, nokkuð sem þau höfðu ekki náð að gera í fyrri heimsókn sinni til landsins.
Verðlagið vakti mikla athygli
Í seinna myndbandinu færist athyglin meðal annars að íslensku verðlagi og þar virðast Ítalirnir eiga erfitt með að trúa eigin augum.
Þau nefna meðal annars mozzarella sem kostar um fimm evrur fyrir 200 grömm, parmesan á um tíu evrur, sushi á 15 til 20 evrur og fjóra lítra af mótorolíu á um 48 evrur.
Þegar þau skoða matseðil á veitingastað kemur einnig í ljós að pastaréttur kostar um 28 evrur og sumir fisk- og kjötréttir nálgast 50 evrur.
„Verðin eru algjörlega galin,“ segja þau þegar þau ganga um eina verslunina og reyna að átta sig á verðmerkingunum.
Ísland verður heimili þeirra næstu mánuði
Þrátt fyrir verðlagssjokkið eru þau greinilega heilluð af landinu og segja landslagið vera stórkostlegt. Þau segja nánast hægt að finna myndir sem eiga heima á póstkortum hvert sem litið er.
Ísland verður ekki aðeins stutt stopp á ferðalagi þeirra. STEPSOVER segir að landið muni verða heimili þeirra næstu fjóra mánuði og hyggjast þau á þeim tíma ferðast víða, skoða bæði þekkta staði og afskekktari svæði og sýna fylgjendum sínum hvernig daglegt líf á Íslandi lítur út.
Fyrir áhugasama er hægt að fylgjast með ferðalagi parsins á rás þeirra.