Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“
Dr. Indriði Benediktsson starfaði í 30 ár hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, við vísinda- og heilbrigðissamstarf þess. Hann er eini Íslendingurinn sem hefur verið embættismaður hjá Evrópusambandinu. „Núna er gríðarlega gott tækifæri sem mun aldrei koma aftur," segir hann.
Ungur hélt Indriði til Berlínar að læra líffræði og verða sameindaerfðafræðingur. Árið var 1982 og Vestur-Berlín var enn þá eyja sem Berlínarmúrinn hlykkjaðist meðfram. Fólk kynti hús sín með kolum og þeir fáu Íslendingar sem þarna voru við nám hittust reglulega eins og skrýtin fjölskylda. Í námi við Freie Universität kláraði hann doktorsritgerð sína um innlimun utanaðkomandi gena í kjarna frumna.
Námsmanninn óraði ekki fyrir að hann ætti eftir að verða embættismaður á vegum Evrópusambandsins lungann úr starfsævi sinni en hann átti eftir að starfa í þrjátíu ár hjá framkvæmdastjórn þess. Í Brussel gegndi hann stöðu vísindafulltrúa og vann í alþjóðlegu vísindaumhverfi að samvinnuverkefnum, stefnumótun og fjármögnun sem sneri að heilbrigðisvísindum og líftækni.
„Í hjarta mínu er ég anarkisti“
Nýverið fór Indriði á eftirlaun en í upphafi alls, við það að klára doktorsgráðu, velti Indriði fyrir sér hvað hann ætlaði að starfa við. „Þá auglýsti Evrópusambandið samkeppni, svokallað concours, fyrir …