Forritarinn Helgi Hrafn Gunnarsson segir enga töfralausn geta komið í stað sjálfstæðrar hugsunar. Hann telur að mannlegt tal gervigreindarinnar geti orðið til þess að fólk ofmeti getu hennar og treysti henni í blindni. Helgi Hrafn er gestur í nýjasta þætti Gervigreindarklúbbsins þar sem hann ræðir við Stefán Atla Rúnarsson um gervigreind, gagnrýna hugsun, persónuvernd, lýðræði og þá hættu sem skapast þegar fólk hættir að sannreyna upplýsingarnar sem birtast því.
Helgi Hrafn: „Það er enginn svindlkóði fram hjá því að hugsa sjálfstætt“