Hamas-samtökin hafa náð samkomulagi við friðarráð Bandaríkjaforseta um aðláta vopn sín af hendi. Samningamaður Hamas segir að samkomulagið sé háð því að Ísraelar standi við sitt.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna sagði í færslu á Truth Social í gærkvöld að friðarráðið hefði náð sögulegu samkomulagi um algjöra afvopnun Hamas og allra annarra vopnaðra hópa á Gaza.
Markmiðið með friðarráðinu, sem Trump stofnaði, er að framfylgja langtímaáætlun um vopnahlé á Gaza.
Í viðtali við fjölmiðla segir Ghazi Hamad, einn helsti samningamaður Hamas, að samkomulagið sé háð því að Ísrael standi við skuldbindingar sínar samkvæmt áætlun Bandaríkjanna sem undirrituð var í október.
Níu mánuðir frá samkomulagi um vopnahlé
Skilyrðin fela meðal annars í sér að ísraelskar hersveitir hætti mannskæðum árásum á Palestínumenn á Gaza, dragi herlið sitt að svokallaðri gulri línu, heimili stóraukinn flutning neyðaraðstoðar inn á Gaza og leyfi nefnd palestínskra sérfræðinga að taka við stjórnartaumunum.
Stjórnvöld í Ísrael eiga eftir að bregðast við fregnum af samkomulaginu. Níu mánuðir eru frá því að samkomulag um vopnahlé var undirritað og fátt hefur breyst á Gaza.
Að minnsta kosti 1200 Palestínumenn hafa verið drepnir og á fjórða þúsund særst í árásum Ísraelshers frá 11. október, samkvæmt upplýsingum frá palestínska heilbrigðisráðuneytinu.
Trump hefur boðað til fundar á sveitasetri sínu í Maryland í dag. Gera má ráð fyrir að hann tjái sig um samkomulagið að honum loknum.