Halli ríkissjóðs jókst um tíu milljarða milli ára
Halli hins opinbera var meiri á öðrum ársfjórðungi en á sama tíma í fyrra, samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Afkoma ríkissjóðs verður mun verri í ár en gert var ráð fyrir þegar fjárlög voru samþykkt. Ríkisstjórnin ætlar engu að síður að snúa hallanum í um fimm milljarða afgang strax á næsta ári.
Afkoma hins opinbera versnaði á öðrum ársfjórðungi ársins. Hallinn nam 48,3 milljörðum króna, eða 3,8 prósentum af landsframleiðslu fjórðungsins, samkvæmt nýjum bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Á sama tíma í fyrra nam hallinn 3,0 prósentum af landsframleiðslu.
Ríkissjóður einn var rekinn með 37,5 milljarða króna halla á fjórðungnum, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Hallinn hafði aukist um tæpa tíu milljarða frá sama tíma í fyrra, þegar hann var 27,7 milljarðar.
-49,9
Tekjur ríkissjóðs námu 378,4 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi og jukust um þrjú prósent frá sama tíma í fyrra. Útgjöldin jukust hins vegar um 5,3 prósent, úr 395,2 milljörðum í 416 milljarða króna.
Á fyrri helmingi ársins var ríkissjóður þar með rekinn með 49,9 milljarða króna halla, samanborið við 43,5 milljarða á sama tímabili í fyrra. Hallinn hefur því aukist um tæp 15 prósent milli ára. Hagstofan tekur fram að ársfjórðungstölurnar séu áætlanir sem …