Varðskipið Þór hefur hætt eftirför eftir Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna. Robert Read framkvæmdastjóri samtakanna segir það breyta litlu fyrir Bandero að varðskipið sé farið annað.
Þau hafi alltaf búist við því að gæslan myndi fylgjast með þeim. Bandero fylgi fyrirmælum gæslunnar og gefi upp staðsetningu sína á klukkutíma fresti.
Hann segir samtökin gruna að Landhelgisgæslan, eða einhver innan hennar, hafi gefið Kristjáni Loftssyni og hvalveiðiskipum hans staðsetningar Banderos. Skipin hafi forðast svæði sem Bandero sé á, sem sé ekki eitthvað sem þau ættu annars að hafa vitneskju um.
Það sé þó ekki endilega svo slæmt, þar sem Bandero haldi sig á svæðum þar sem þeir viti af langreyðum og því hafi þeim tekist ætlunarverk sitt betur – að koma í veg fyrir hvalveiðar.
„Sem er ábyggilega ástæðan fyrir því að Kristján Loftsson er orðinn frekar pirraður, sérstaklega síðustu daga, og hefur sakað MAST um að deila gögnum sem sýna staðsetningar hvaladráps,“ segir Robert.
Spurning hvað Kristján geri næst
Hann telur það útreiknaða árás á MAST af hálfu Kristjáns. Hann gleymi því þó að Paul Watson-samtökin, og áður Sea Shepard, hafi fylgst með hvalveiðum í mörg ár og viti því hvar gjöfulustu mið Hvals séu.
„Þannig að við erum með mjög góða hugmynd um hvar hann er að veiða og hvar langreyðarnar eru og þess vegna getum við staðfest Bandero svona vel til að verja hvalina. Kristján er að eiga mjög hæga byrjun á hvalavertíðinni og virðist vera orðinn frekar reiður.
Nú sé spurningin hvort Kristján vilji áfram forðast Bandero og veiða færri hvali eða reyni að ögra þeim og espa ástandið upp.
Ekki hryðjuverk að sökkva auðu skipi í höfn
Spurður um fullyrðingar Kristjáns um að það geti ógnað öryggi áhafna að staðsetningum hvalveiðiskipanna sé deilt segist Robert ekki skilja þau sjónarmið. Bandero hafi aldrei hótað að stofna öryggi sjómanna í hættu.
Samtökin virði ávallt mannslíf ofar öllu, hvort sem það séu líf áhafna um borð í hvalveiðiskipum eða annarra.
Spurður hvort ekki sé tilefni fyrir Hval að óttast aðgerðir samtakanna í ljósi aðgerða á vegum Sea Shepard árið 1986, þar sem liðsmenn þeirra sökktu tveimur skipum þeirra, segir Robert það ekki sambærilegt.
„Það voru engir um borð í skipunum sem var sökkt í höfninni. Ég veit að í íslenskum miðlum er stundum fjallað um það sem gerðist árið 1986 sem einhvers konar hryðjuverk, en þú getur ekki beitt autt málmskip ofbeldi.“