Magnús Benediktsson, forseti bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi, og eiginkona hans Hildur Sif Hilmarsdóttir vöknuðu í morgun við skilaboð frá nágranna sínum um að búið væri að brjóta rúður á bílum við heimili þeirra.
„Ég stekk út á sloppnum og kíki á þetta og þá sjáum við að það er búið að brjóta rúður á nokkrum bílum. Svo kemur í ljós þegar fleiri nágrannar fara út að tjónið er töluvert umfangsmeira. Þetta eru hátt undir þrjátíu bílar sem urðu fyrir barðinu,“ segir Magnús í samtali við fréttastofu.
Skemmdarvargurinn hefur notað einhvers konar áhald til að berja í rúðurnar og brjóta þær. Líkt og sjá má á myndinni hér fyrir ofan splundraðist rúðan ekki á þeirra bíl en það voru ekki allir svo heppnir.
„Ein kona er með þrjá barnabílstóla og glerbrotin fóru út um allt og í stólana. Sama hjá okkur, það fóru smá glerbrot í bílstólinn,“ segir Magnús.
Enginn varð var við neitt í morgun. Ekkert þjófavarnarkerfi fór í gang.
„Þarna var engin Tesla. Þær eru með myndavélar þannig það hefði verið gott. Það varð bara enginn var við neitt en núna erum við nágrannarnir að tala saman og vonandi er einhver með dyrabjöllumyndavél eða eitthvað. Svo er myndavél hjá gamla Mýrhúsaskóla. Lögreglan er að kíkja í myndavélina, vonandi kemur eitthvað úr því,“ segir Magnús.