Rúv greinir frá og hefur eftir aðstoðaryfirlögregluþjóni á Norðurlandi Eystra að lögreglu hafi borist tilkynning um grun um vopnaburð. Tveir hafi verið stöðvaðir og skotvopn fundist í báðum bílum.
Ekki náðist í lögregluna á Akureyri þegar Vísir hafði samband.
Mikill mannfjöldi hefur verið á Akureyri um verslunarmannahelgina þar sem fjölskylduhátíðin Ein með öllu hefur staðið yfir auk stórtónleika FM95BLÖ í gær.
Veistu meira um málið? Áttu myndefni eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.
Fréttin verður uppfærð...
Veistu meira um málið? Áttu myndefni eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.