Rakari í miðborg Lundúna er hylltur sem hetja eftir að hafa yfirbugað konu sem grunuð er um að hafa stungið fjóra menn með skærum í Lundúnum í dag.
Lögregla var kölluð að Endell Street skömmu eftir klukkan hálfeitt að staðartíma. Þar voru fjórir menn með stungusár.
Mennirnir voru fluttir á sjúkrahús en tveir þeirra hafa þegar verið útskrifaðir.
Særður maður leitaði skjóls á rakarastofu
Atburðarásin hófst þegar einn hinna særðu kom inn á rakarastofuna 2 Chairs Grooming Room með stungusár á bakinu og bað um aðstoð.
Starfsmenn stofunnar þrýstu pappír að sárinu til að stöðva blæðinguna. Skömmu síðar sá einn rakaranna konu ganga niður götuna með skæri í hendinni.
„Ég hljóp út úr stofunni og greip hana. Önnur kona kom síðan til að hjálpa og lögreglan mætti,“ sagði rakarinn í samtali við Metro.
Hann sagðist hafa elt konuna eftir götunni og að hún hefði ógnað honum með skærunum.
„Hún hefði getað ráðist á einhvern annan. Ég varð að stöðva hana. Ég brást bara við og gerði það sem þurfti að gera,“ sagði hann.
Annar starfsmaður rakarastofunnar sagði manninn hafa sýnt mikið hugrekki.
„Áður en hún gat haldið áfram hljóp hann yfir götuna og stöðvaði hana. Hann var algjör hetja.“
Kona handtekin á vettvangi
Lögreglan handtók 47 ára konu vegna gruns um líkamsárás og vörslu hættulegs vopns. Skæri fundust á vettvangi og er talið að þau hafi verið notuð í árásunum.
Konan var flutt í fangageymslu þar sem hún var enn síðdegis í dag.
Samkvæmt breskum fjölmiðlum telur lögregla að atvikið kunni að tengjast geðrænum veikindum. Vitni sagði hina handteknu vera heimilislausa konu sem væri þekkt á svæðinu og dveldi reglulega á gistiskýli.
Þyrla lenti á Trafalgar Square
Mikill viðbúnaður var vegna árásarinnar. Þrír sjúkrabílar, fjölmargir lögreglubílar og nærri tveir tugir lögreglumanna voru sendir á vettvang.
Þyrla frá bráðaþjónustu Lundúna lenti á Trafalgar Square og vakti aðgerðin mikla athygli ferðamanna og annarra vegfarenda.
Covent Garden er einn fjölsóttasti ferðamannastaður Lundúna en meira en 40 milljónir manna heimsækja svæðið á hverju ári.