Bandarískir ferðamenn í göngu fengu óvænta hjálp frá lausum hundi á göngu um Mosfellssveit. Fór hann hvergi frá þeim og leiddi þá rétta leið að Helgufossi.Blaðið The Dodo greinir frá þessu.Bandarískir göngumenn, Toni Carr og fjölskylda hennar, fengu óvænta hjálp frá lausri svartri tík þegar þeir voru á gangi í Mosfellssveit. Varð gangan að nokkurs konar ævintýri og veltu þeir því fyrir sér hvort að tíkin væri álfur. En hún hélt sig nálægt þeim og leiddi þá rétta leið að Helgufossi.
Fengu óvænta hjálp frá svartri tík við Helgufoss – „Eins og álfur“