Ljósmyndir af sálmaskrá sem sögð er hafa verið dreift á fyrstu opinberu „messu“ Trans kirkjunnar á Hinsegin dögum sýna að Faðir vor var tekið til gagngerrar endurskrifunar. Í stað hinnar hefðbundnu kristnu bænar birtist þar texti undir fyrirsögninni „Móðir vor“, þar sem meðal annars er beðið um „hormónaskammt“ og vísað til „trans teymis“, „glimmers“, „regnbogans“ og „typpasleikisins“.
Myndirnar voru birtar á Facebook á laugardag. Höfundur færslunnar segist hafa farið á fyrstu messu Trans kirkjunnar og birtir ljósmyndir af því sem hann segir vera sálmaskrá viðburðarins.
„Ég fór á fyrstu messu í trans kirkjunni um daginn og datt í hug að deila því sem stóð í sálmaskrá kirkjunnar. Hvað finnst ykkur um?“ segir í færslunni.
„Móðir vor, sem afneitaði limnum“
Tengingin við Faðirvorið er skýr í textanum. „Móðir vor“ hefst á orðunum:
„Móðir vor, sem afneitaði limnum“
Því næst segir að hún hafi valið sitt eigið nafn og er áfram byggt á kunnuglegri uppbyggingu bænarinnar. Í stað „Gef oss í dag vort daglegt brauð“ segir:
„Gef oss í dag vor hormónaskammt“
Og í framhaldinu:
„og Fyrirgef oss trans teymi svo sem vér og fyrirgefum vorum rekkjunautum.“
Lokaerindið er sömuleiðis byggt á lokahluta Faðir vors. Þar segir meðal annars:
„Eigi leið þú oss í gæsún heldur frelsa oss frá illu.“
Textanum lýkur síðan með vísun í „glimmerið“, „regnbogann“ og „typpasleikinn að eilífu“, áður en enska orðið „Slay“ stendur eitt og sér.
„Hin heilaga þrenning“
Faðir vor var ekki eina kristna vísunin í sálmaskránni.
Á annarri síðu er kafli undir yfirskriftinni „Hin heilaga þrenning“. Þar hefur hin hefðbundna kristna formúla „í nafni föður, sonar og heilags anda“ verið endurskrifuð:
„Í nafni vorrar móður, vors burs og heilagrar kynvitundar. Slay.“
Þá er einnig að finna íslenskan texta undir heitinu „Ég er eins og ég er“ og enska söngtextann „Holy“, þar sem meðal annars er fjallað um líkama, ást og „our holy trinity“.
Fyrsta opinbera „messa“ Trans kirkjunnar
Viðburðurinn bar heitið „Trans kirkjan – fyrsta messa“ og fór fram í Iðnó sunnudaginn 9. ágúst á Hinsegin dögum.
Í opinberri kynningu sagði að Trans kirkjan byði fólk velkomið í sína „fyrstu opinberu messu“, þar sem gestum gæfist kostur á að hlusta á „fagnaðarerindið“ og „frelsast undan fjötrum kynjatvíhyggjunnar“.
Þar var einnig tekið sérstaklega fram að ekki væri um hefðbundna guðsþjónustu að ræða heldur dragsýningu, sem færi að mestu fram á íslensku. Aðgangur var ókeypis en tekið var við framlögum til „safnaðarins“.
Viðburðurinn var skráður á dagskrá Hinsegin daga ásamt öðrum viðburðum hátíðarinnar.
Trans kirkjan hefur sjálf lýst eðli verkefnisins með orðunum: „Sæl eru þau sem ádeilur skilja, því þeirra mun kímnigáfan verða.“ Sú lýsing bendir til þess að notkun kristinna bæna, tákna og orðalags sé meðvituð ádeila og hluti af dragsýningunni.
Ljósmyndirnar af sálmaskránni gefa nú nánari mynd af því hversu langt sú ádeila gekk — allt frá endurskrifun á Faðir vor yfir í nýja útgáfu af hinni heilögu þrenningu.