Einungis einn starfsmaður af 30 reyndist vera með sveinspróf þegar vinnustaðaeftirlit Fagfélaganna kom við á stóru byggingarsvæði í Garðabæ á mánudaginn.
„Í þessari heimsókn kom fram mjög mikið af annmörkum af hendi verktaka,“ segir Benóný Harðarson, framkvæmdastjóri Fagfélaganna.
„Við erum auðvitað búin að sjá fullt af vondum hlutum í sumar en þetta svona sló út aðrar heimsóknir í hversu ábótavant margt var,“ segir Benóný sem telur að niðurstöðurnar sýni fram á mikilvægi reglubundins eftirlits á vinnustöðum.
Á svæðinu var unnið við húsasmíði, raflagnir, pípulagnir, múrverk, gluggaísetningar og annað fleira sem krefst réttinda. Þá unnu starfsmenn einnig að því að brenna þakpappa á þaki blokkarinnar og reyndist enginn þeirra með tilskilin réttindi.
Tveir af þrjátíu starfsmönnum á svæðinu voru íslenskir en aðrir af erlendum uppruna.
Öryggismál í lamasessi
Öryggismálum á byggingarsvæðinu var mjög ábótavant. Margir starfsmenn voru án nauðsynlegra öryggishlífa. Á hluta vinnusvæðisins voru fallvarnir ekki fullnægjandi og verður Vinnueftirlitinu send sérstök ábending vegna þess.
„Svo er náttúrulega eitthvað líka sem við gerum alvarlegar athugasemdir við að starfsmenn margra fyrirtækja á svæðinu fá ekki launaseðla, annaðhvort seint eða illa, jafnvel starfsmenn hjá fyrirtækjum sem hafa verið á Íslandi í nokkur ár,“ segir Benóný.
Meginverktaki á svæðinu er Arnarhvoll ehf. Benóný segir að öryggismálin verði tilkynnt til Vinnueftirlitsins. Hægt sé að kæra réttindamál til lögreglu en Benóný segir það hafa haft lítinn árangur hingað til.
„Lögreglan hefur haft lítið mannafl til að sinna þessum verkefnum á síðustu árum og því hefur lítið komið út úr okkar kærum þangað í gegnum tíðina,“ segir Benóný sem tekur fram að áfram verði fylgst vel með svæðinu. Tekið er fram í tilkynningu Fagfélaganna að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem Fagfélögin fara í eftirlit á þessum vinnustað. Sambærileg vandamál komu í ljós í fyrri heimsókn.
Gallar í nýjum fjölbýlishúsum algengir
Í rannsókn á vegum Háskóla Íslands sem birtist á síðasta ári var algengi og eðli galla í nýbyggðum fjölbýlishúsum skoðað.
Þar komu fram gallar í 91 af þeim 100 fjölbýlishúsum sem voru skoðuð. Í 42 tilfellum voru gallar metnir léttvægir en í 30 tilfellum voru þeir metnir alvarlegir og í 19 tilfellum umfangsmiklir.
„Við teljum þetta vera skort á fagþekkingu á byggingarstöðum. Við teljum að byggingarverktakar og undirverktakar hjá þeim séu að reyna að spara sér í launakostnaði með því að ráða inn ófaglegt fólk, oft á lægstu töxtum,“ segir Benóný.