Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru um líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum eftir að hafa elt hóp unglinga með eldhúshníf og slegið einn þeirra í höfuðið. Atvikið átti sér stað í fjölbýlishúsi í Kópavogi á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2022.Maðurinn var að undirbúa kvöldmat þegar unglingarnir ákváðu að gera dyraat og spörkuðu í útidyr íbúðar hans af slíku afli að hurðarkarmurinn brotnaði. Á heimilinu voru einnig átta ára dóttir mannsins og þáverandi kærasta hans.
Dyraat í Kópavogi fór úr böndunum: „Ég var í eina sekúndu í smá sjokki. Ég sá að stelpan var bara titrandi“