Jónas Hallgrímur Ottósson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi, segir lítið að frétta í leit lögreglunnar að drengjunum. Það sé unnið að því að staðsetja þá en þeir hafi látið vita af sér. Hann segir leitarbeiðnina senda út að beiðni barnaverndar á Vesturlandi.
Strákarnir fóru frá heimilum sínum í Borgarnesi síðastliðinn sunnudag. Fram kom í tilkynningu lögreglunnar í morgun að Szymon er 165 sentímetrar á hæð, grannvaxinn og með stutt dökkt hár. Hann var klæddur í svarta peysu, svartar gallabuxur og svarta skó.
Cezary fór frá heimili sínu í Borgarnesi á sunnudaginn 13. september sl. Cezary er 178 sm á hæð, grannvaxinn og með stutt skollitað hár. Hann er klæddur í svarta peysu og svartar buxur.
Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir þeirra eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í gegnum Neyðarlínuna með því að hringja í 112.