Búlgarar ganga að kjörborðinu í seinni umferð forsetakosninga í dag.
Kosningabaráttan hefur verið hörð en frambjóðendurnir tveir eru með gjörólíka sýn á stríðið í Úkraínu og tengsl Búlgaríu við Rússland.
Sitjandi forseti, Iliana Iotova vill eiga í frekari samskiptum við rússnesk stjórnvöld og hún er andvíg hernaðaraðstoð við Úkraínu. Mótframbjóðandi hennar er Andrey Gyurov hagfræðingur en hann hallar sér meira að Vesturlöndum.
Í fyrri umferð tókst hvorugum frambjóðandanum að sækja sér meirihluta. Þá var Iotova með 35% atkvæða en Gyurov með 32%. Í fyrri umferðinni var kosningaþáttaka enn fremur sögulega lág en aðeins 23% Búlgara greiddu atkvæði.