Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðs Íslands segir að Hólmfríður Grímsdóttir hafi verið skipuð dómari við Félagsdóm. Skipanirnar komi í kjölfar þess að Ásgerður Ragnarsdóttir, fráfarandi forseti Félagsdóms, var skipuð dómari við Hæstarétt.
Ásgerður hafi verið skipuð dómari við Hæstarétt frá og með 1. september 2026 og látið á sama tíma af störfum sem forseti Félagsdóms.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hafi óskað eftir tilnefningu Hæstaréttar vegna breytinga á skipan dómsins. Hæstiréttur hafi tilnefnt þrjá dómara til embættanna og félags- og húsnæðismálaráðherra hafi nú skipað þá í samræmi við tilnefninguna.