„Algjör höfnun á Trump og Trumpisma“

„Algjör höfnun á Trump og Trumpisma“

„Algjör höfnun á Trump og Trumpisma“

Það eru líklega ekki margir hérna megin Atlantshafsins sem sýta niðurstöðurnar í kosningunum í Bandaríkjunum í gær, enda hefur sambandið ekki verið upp á marga fiska að undanförnu, sagði Björn Malmquist fréttamaður RÚV í Brussel í hádegisfréttum.

„Það hefur hins vegar ekki verið mikið um yfirlýsingar, nema að Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar fagnaði niðurstöðunni á samfélagsmiðlum og reyndi að yfirfæra þessa bláu bylgju á komandi kosningar á Spáni, sem er mögulega óskhyggja. En það verður líka að hafa í huga að það er ákveðin óvissa með framhaldið.

Evrópskir fréttaskýrendur hafa bent á að þótt Demókratar muni núna ráða báðum deildum Bandaríkjaþings frá og með janúar, þá eru utanríkismál að miklu leyti á forræði forsetans, og afstaða hans skiptir miklu máli fyrir ríkin í Evrópu og Evrópusambandið sjálft - ekki bara út af tollamálum og viðskiptum, heldur einnig og ekki síst hvað varðar Úkraínu og mögulegan frið þar.

Í dag verður einmitt fundur hér í Brussel um stöðuna í Úkraínu, þar sem embættismenn frá framkvæmdastjórn ESB setjast niður með fulltrúum Úkraínu, NATO og frá Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi, ríkjunum þremur sem hafa leitt stuðning evrópskra ríkja undanfarin ár. Bandaríkjamenn verða einnig á þessum fundi, mögulega Steve Witkoff, sérstakur erindreki Bandaríkjaforesta, og þarna stendur meðal annars til að undirbúa fund sem verður í Abu Dhabi í næstu viku með þáttöku Úkraínumanna og Rússa.“

Staða Donalds Trump næstu tvö ár, með Demókrata í meirihluta í báðum þingdeildum verður strembin en ekki án fordæma.

Friðjón Friðjónsson, sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum var til viðtals í hádegisfréttum útvarps, og sagði að átaka væri að vænta.

„Trumps agði fyirr helgi að hann yrði herra Veto ef þessi staða kæmi upp. Hann yrði herra neitunarvald og myndi neita lögum sem þing demókrata samþykkir, þannig að það má búast við miklum átöum.“

Friðjón nefnir að til dæmis verði settar af stað rannsóknarnefndir til að skoða embættisverk Trumps.

„Hann reynir auðvitað að fara sínu fram, því að hann hefur mikið vald í gegnum tilskipanir, en á endanum er fjárveitingavaldið hjá þinginu og það ræður.“

Friðjón gefur lítið fyrir afneitun Trumps á ábyrgð vegna þessarar niðurstöðu.

„Þessar niðurstöður eru algjör höfnun á Trump og Trumpisma.“

Hvernig fór svona illa fyrir Repúblikönum að þessu sinni eftir frækinn sigur í kosningunum fyrir aðeins tveimur árum?

Greinandi New York Times minnist á tvo hópa sem lengi vel voru hliðhollir Demókrötum, fóru yfir til Donalds Trump en sneru svo aftur.

Annars vegar eru það svartir kjósendur sen stukku aftur til baka, og hins vegar yngri kjósendur, á aldrinum 18-34 ára.

Sýslur þar sem meirihluti kjósenda eru svartir hnikuðust aðeins til hægri 2024, eða um rúmt prósentustig, en sveifluðust aftur um 16 prósentustig til Demókrata að þessu sinni.

Sýslur sem eru með lægri meðalaldur sveifluðust enn meira – sjö prósentustig til hægri og svo nær 23 stig til baka að þessu sinni.

Ron DeSantis, fráfarandi ríkisstjóri Flórída og eitt sinn mótframbjóðandi Donalds Trump í forvali Repúblikana er ekki bjartsýnn fyrir komandi ár. Miðað við stöðuna eiga Repúblikanar varla kost á meirihluta í öldungadeildinni fyrr en árið 2032.

Sigurgleði Demókrata var fölskvalaus í nótt, enda unnu þeir fjölmarga frækna sigra um land allt. Hér má sjá svipmyndir frá gleði næturinnar.

Fleiri kusu utan kjörfundar nú en nokkru sinni. Engin atkvæði voru þó langsóttari en frá geimförunum í alþjóðlegu geimstöðinni á braut um jörð.

Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti segir úrslit kosninganna senda skýr skilaboð. Þjóðin vilji að stjórnmálin sameini fólk frekar en sundra.

Í færslu á X hrósar Obama frambjóðendum Demókrata fyrir harða baráttu, jafnvel í kjördæmum sem voru talin ólíkleg til árangurs.

„Núverandi stjórn á tvö ár eftir, en okkar hlutverk er að bretta upp ermar, stuðla að breytingum þar sem við getum, koma í veg fyrir frekari skaða og leggja grunn að framtíðinni.“

Allt stefnir í tímamótaúrslit úr kosningunum í gær, en fyrir utan útkomuna og valdaskiptin í þinghúsinu heyrir margt til tíðinda.

Fyrsta svarta konan sem verður ríkisstjóri

Keisha Lance Bottoms verður næsti ríkisstjóri Georgíu eftir að hún bar sigurorð af Rick Jackson sem naut stuðnings Trumps forseta.

Fyrsti opinberlega samkynhneigði karlmaðurinn nær kjöri í öldungadeild

Demókratinn Chris Pappas vann slaginn um öldungadeildarþingsæti í New Hampshire. Hann er samkynhneigður og verður fyrsti opinberlega samkynhneigði maðurinn sem tekur sæti í öldungadeildinni.

Fyrsti svarti ríkisstjórinn í Flórída

Byron Donald, einn dyggasti stuðningsmaður Trumps forseta, vann öruggan sigur í kjörinu um ríkisstjóra Flórída. Hann verður fyrsti svarti maðurinn til að gegna því embætti.

Fyrsti svarti ríkisstjórinn í Wisconsin

David Crowley varð fyrsti svarti maðurinn til að ná kjöri sem ríkisstjóri Wisconsin.

Fyrsti svarti ríkisstjórinn í Nevada

Aaron Ford varð fyrsti svarti maðurinn til að ná kjöri sem ríkisstjóri Nevada.

Fyrsta konan kjörin til öldungadeildarinnar frá Suður-Karólínu

Annie Andrews vann óvæntan sigur á Darlene Graham í Suður-Karólínu, og varð þar með fyrsta konan til að ná kjöri til öldungadeildar í ríkinu. Graham sjálf var skipuð af Trump eftir að Lindsey bróðir hennar lést fyrr á árinu.

Fyrsti ríkisstjórinn af rómönskum uppruna í Texas

Gina Hinojosa steypti Repúblikananum George Abbot úr sessi ríkisstjóra Texas, en hann hafði setið þar í þrjú kjörtímabil.

Fyrsti músliminn í öldungadeildina

Abdul El-Sayed , Demókrati frá Michigan, verður fyrsti músliminn til að taka sæti í öldungadeildnni. Trú hans var mikið í umræðunni í kosningabaráttunni þar sem Repúblikanar hömruðu á því að hann væri róttækur íslamisti.

Fyrsta konan sem er kjörin ríkisstjóri í Ohio

Amy Acton bar sigurorð af Vivek Ramaswamy í ríkisstjóraslagnum í Ohio. Hún verður fyrsta konan til að gegna því embætti.

Fyrsti ríkisstjórinn af rómönskum uppruna í Kaliforníu

Xavier Becerra verður fyrsti ríkisstjórinn af rómönskum uppruna í Kaliforníu.

Ef við lítum yfir stöðuna núna eru Demókratar með 54 sæti í öldungadeildinni og Repúblikanar 44. Tvö sæti eru óuppgerð, í Alaska og Mississippi. Óvíst er hvort staðan þar skýrist í bráð þar sem slagurinn í Mississippi er á hnífsegg og einungis sárafá atkvæði skilja frambjóðendur að, og fyrirkomulagið í Alaska tefur nokkuð fyrir staðfestum úrslitum.

Í fulltrúadeildinni hafa Demókratar tryggt sér 228 sæti, tíu fleiri en þarf til meirihluta, og Repúblikanar eru með 139.

Repúblikaninn Pete Ricketts haldur öldungadeildasæti sínu í Nebraska. Hann bar sigurorð af hinum óháða Dan Osborn með rúmlega 50% atkvæða gegn 44%.

Þá eru bara tvö ríki eftir, Alaska og Mississippi, en það gæti verið nokkuð í að úrslitin þar liggja fyrir.

Repúblikaninn Kurt Alme er staðfestur sigurvegari í Montana. Það kemur ekki á óvart þar sem staða Repúblikana hefur alla tíð verið sterk í ríkinu. Alme er með 47,8% þegar 84% atkvæða hafa verið talin. Hinn óháði Seth Bodnar er með 38,6%.

Demókratinn Alani Bankhead er í þriðja sæti með um 12%, en kaldhæðnin í því er að Bankhead og Bodnar börðust hatrammlega og reyndu að þrýsta á hvort annað að hætta við framboð, en svona fór.

Svona lítur kortið fyrir öldungadeildarkosningarnar út eins og stendur. Michigan og Minnesota voru síðustu ríkin til þess að verða blá.

Kortið er byggt á gögnum The New York Times. Enn hafa fjögur ríki ekki talið nógu stóran hluta atkvæða til þess að hægt sé að lýsa sigurvegara í ríkinu.

Eins og sakir standa eru fjögur öldungadeildarsæti óuppgerð.

Í Montana á Repúblikaninn Kurt Alme sigur vísan, er með 48% atkvæða gegn 39% atkvæðum hins óháða Seth Bodnar þegar 84% atkvæða hafa verið talin.

Í Nebraska er svipað upp á tengingnum þar sem Repúblikaninn Pete Ricketts er á góðri leið með að verja sæti sitt gegn óháðum frambjóðanda.

Mikil spenna er í næstu tveimur ríkjum.

Í Alaska er búið að telja 72% atkvæða og innan við prósentustigi munar á milli Dan S. Sullivan og Mary Peltola. Sú talning gæti tekið nokkuð langan tíma vegna sérstaks kosningakerfis þar.

Og í Mississippi af öllum stöðum er frámuna mjótt á munum milli Demókratans Scott Coloms og Repúblikananans Cindy Hyde-Smith. Einungis nokkrir tugir atkvæða skilja þau að þegar rúm 95% atkvæða hafa verið talin.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist í viðtali við Fox News í nótt geta unnið með Demókrötum að mörgum málum.

„Ég get sagt þetta: til hamingju Demókratar. Þeir stóðu sig vel.“

Þrátt fyrir sigra Demókrata og bágt gengi Repúblikana sagði Trump að úrslitin væru ekki honum að kenna. Hann taldi stríðið í Íran þó eiga þátt í úrslitunum.

„Ég held að Íran hafi verið hluti af ástæðunni en á sama tíma skilur fólk ástæðurnar að baki því sem ég hef gert gagnvart Íran.

Trump hafði skrifað á samfélagsmiðil sinn Truth Social að Repúblikönum hefði gengið betur ef hann væri í kjöri.

„Ég var ekki á kjörseðlinum, ef ég hefði verið í framboði hefðum við unnið stórsigur.“

Demókratar eru nú með 54 sæti í öldungadeildinni eftir að Minnesota og Michigan féllu þeim í vil.

Peggy Flanagan er með 54% í Minnesota gegn 44% Michelle Tafoya og í Michigan er Abdul El-Sayed siogurvegari hann er með 52% gegn 46% Mike Rogers.

Demókratar eru komnir með drjúgan meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings, samkvæmt spám bandarískra fjölmiðla og fréttastofa. Þeim er spáð 53–54 af þeim 100 sætum sem eru í öldungadeildinni.

Gangi þetta eftir geta Demókratar ráðið því hvaða löggjöf nær í gegn en þess verður þó að geta að forsetinn hefur neitunarvald. Þeir geta þó líka ráðið því hvort skipanir forsetans í hin ýmsu embætti ná fram að ganga. Öldungadeildin þarf til dæmis að staðfesta skipun hæstaréttardómara eins og kom í ljós þegar þingið, undir stjórn Repúblikana, neitaði að staðfesta dómara sem Barack Obama vildi skipa. Því kom það í hlut Donalds Trumps að skipa nýjan dómara í Hæstarétt, sem hann átti eftir að endurtaka tvisvar.

Góðan dag og velkomin í nýja fréttavakt RÚV um þingkosningarnar í Bandaríkjunum.

Björtustu vonir Demókrata gengu eftir þegar talið var upp í kjörkössunum í nótt. Talningu er ekki lokið en bandarískar fréttastofur hafa birt spár sínar um úrslit í baráttu um flest þingsætin. Samkvæmt þeim hafa Demókratar tryggt sér meirihluta bæði í öldungadeildinni og í fulltrúadeildinni, spurningin er bara hversu stór hann verður.

Ég heiti Brynjólfur Þór Guðmundsson og hef umfjöllunina með ykkur. Þorgils Jónsson tekur svo við innan skamms. Fréttavaktir næturinnar og gærdagsins má finna hér að neðan.

Hér að neðan má sjá fréttavaktir næturinnar og gærdagsins af bandarísku þingkosningunum.

#algjör #höfnun #trump #trumpisma


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-11-04-algjor-hofnun-a-trump-og-trumpisma-491681

📰 Aðrar fréttir

Kosningarnar í Bandaríkjunum höfðu bein áhrif á örlög Christu Pike – Þetta vill nýji fylkisstjórinn gera
📅 05.11.2026 👁️ 1
Kosningarnar í Bandaríkjunum höfðu bein áhrif á örlög Christu Pike – Þetta vill nýji fylkisstjórinn gera
Margt hékk á spýtunni í nýloknum þingkosningum í Bandaríkjunum. Meðal annars framtíð hins dæmda morðingja Christu Pike, sem ekki tókst að taka af lífi...
Sækist eftir stjórasæti SÞ í skugga á­sakana vegna ó­dæða í Súdan - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Sækist eftir stjórasæti SÞ í skugga á­sakana vegna ó­dæða í Súdan - Vísir
Blaðamaður New York Times hefur komið höndum yfir skýrsluna sem lögð var fyrir öryggisráðið í síðustu viku. Þar kemur fram hvernig öryggisfyrirtæki fr...
Segir stóran samning við Rússland í farvatninu
📅 05.11.2026 👁️ 1
Segir stóran samning við Rússland í farvatninu
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að stór samningur við Rússland sé í vinnslu. Hann segir að samningur þessi muni ekki einungis hafa áhrif á Úkraín...
King relishes 'politically charged' deployments, Palace aide says
📅 05.11.2026 👁️ 2
King relishes 'politically charged' deployments, Palace aide says
The monarch faced questions on the UK's involvement in the slave trade during his Caribbean tour.
Rannsókn beinist einnig að bróður Markle í barnaklámsmáli föður þeirra
📅 05.11.2026 👁️ 1
Rannsókn beinist einnig að bróður Markle í barnaklámsmáli föður þeirra
Hálfbróðir Meghan Markle, Thomas Markle yngri, hefur nú komið til tals í rannsókn á föður þeirra, Thomas Markle eldri, vegna vörslu barnakláms. Rannsa...
Tróð eigin skít upp í eiginmann sinn – Kenndi þunglyndi eftir dauða foreldra sinna um
📅 05.11.2026 👁️ 1
Tróð eigin skít upp í eiginmann sinn – Kenndi þunglyndi eftir dauða foreldra sinna um
Bresk kona á sjötugsaldri hefur verið dæmd fyrir að troða eigin skít upp í munn eiginmanns síns. Konan hefur ítrekað beitt hann líkamlegu og andlegu o...
Egill furðar sig á hvað vaki fyrir Morgunblaðinu: „Þetta er eitt það ljótasta sem ég hef séð í fréttum á Íslandi“
📅 05.11.2026 👁️ 1
Egill furðar sig á hvað vaki fyrir Morgunblaðinu: „Þetta er eitt það ljótasta sem ég hef séð í fréttum á Íslandi“
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason veltir fyrir sér hvað vaki fyrir blaðamönnum Morgunblaðsins með myndbirtingu við frétt sem birtist í blaðinu í dag fi...
Newsom breytir öllum dauðadómum í Kaliforníu í lífstíðardóma
📅 05.11.2026 👁️ 2
Newsom breytir öllum dauðadómum í Kaliforníu í lífstíðardóma
Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, hefur mildað refsingar þeirra 548 sem voru í dauðadeild í ríkinu. Þeir hljóta í staðinn lífstíðarfangelsi. Talan...
Police car set alight in Glasgow amid Bonfire Night trouble
📅 05.11.2026 👁️ 1
Police car set alight in Glasgow amid Bonfire Night trouble
The car was torched after officers answered reports of an injured man in the Provanmill area of Glasgow.
Forstjóri ÁTVR: Nauðsynlegt að fá skýrari lög um áfengissölu
📅 05.11.2026 👁️ 2
Forstjóri ÁTVR: Nauðsynlegt að fá skýrari lög um áfengissölu
Borið hefur á togstreitu í samfélaginu varðandi fyrirkomulag áfengissölu og þá er, að vissu leyti, uppi lagaleg óvissa í ofanálag.Forstjóri ÁTVR, Þorg...
Nauðsynlegt að niðurstaða fáist í dómsmálum um áfengissölu netverslana
📅 05.11.2026 👁️ 1
Nauðsynlegt að niðurstaða fáist í dómsmálum um áfengissölu netverslana
Borið hefur á togstreitu í samfélaginu varðandi fyrirkomulag áfengissölu og ríkir enn óvissa um niðurstöðu dómsmála sem varða netsölu áfengis. Forstjó...
Sendi ríf­lega 300 fyrirspurnir: „Sjálfstæðismenn orðnir hinir nýju Píratar“ - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 2
Sendi ríf­lega 300 fyrirspurnir: „Sjálfstæðismenn orðnir hinir nýju Píratar“ - Vísir
Síðustu þrjá daga hefur Guðlaugur, sem er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd, sent tíu fyrirspurnarskjöl á mismunand...
Fór í hart vegna íbúðar fyrir börn með mikinn vanda og hafði betur
📅 05.11.2026 👁️ 2
Fór í hart vegna íbúðar fyrir börn með mikinn vanda og hafði betur
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur orðið við kröfu fyrrum eiganda íbúðar á efri hæð í tvíbýlishúsi í Hafnarfirði um að fella úr gildi ákv...
Vernd yngri byggingararfs eykst með heimild til að leita álits á breytingum húsa
📅 05.11.2026 👁️ 2
Vernd yngri byggingararfs eykst með heimild til að leita álits á breytingum húsa
Eigendum húsa sem byggð voru á árunum 1924 til 1940 er ekki lengur skylt að leita álits Minjastofnunar Íslands vegna fyrirhugaðra breytinga, heldur fy...
Hætti við fram­boð vegna veikinda en vann samt - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 2
Hætti við fram­boð vegna veikinda en vann samt - Vísir
Á síðu yfirkjörstjórnar Iowa má sjá að Armstrong fékk 4.602 atkvæði og Keith Jones, mótframbjóðandi hans, fékk 3.737 atkvæði. Demókratar náðu ekki mei...
Vonast eftir auknum stuðningi frá breyttu Bandaríkjaþingi
📅 05.11.2026 👁️ 2
Vonast eftir auknum stuðningi frá breyttu Bandaríkjaþingi
Úkraínumenn fagna niðurstöðu þingkosninga í Bandaríkjunum í vikunni og vonast eftir meiri stuðningi þaðan. Volodymyr Zelenský, forseti Úkraínu, vonar ...
Meira um hlátur en grát eftir að bólusetning með nefúða hófst
📅 05.11.2026 👁️ 2
Meira um hlátur en grát eftir að bólusetning með nefúða hófst
Undanfarið hafa börn á aldrinum tveggja til fjögurra ára víðs vegar um land fengið bóluefni gegn inflúensu með nefúða í stað sprautu. Það er léttir bæ...
Ímam gagnrýnir umfjöllun mbl um Usmani: „Hvers vegna þurfa allir múslimar að svara?“
📅 05.11.2026 👁️ 2
Ímam gagnrýnir umfjöllun mbl um Usmani: „Hvers vegna þurfa allir múslimar að svara?“
  Mansoor Ahmad Malik, ímam og forstöðumaður Samfélags Ahmadiyya-múslima á Íslandi, gagnrýnir hlutverk mbl og blaðamannsins Stefáns E. Stefánssonar í ...
Ímam gagnrýnir umfjöllun um Usmani: „Hvers vegna þurfa allir múslimar að svara?“
📅 05.11.2026 👁️ 2
Ímam gagnrýnir umfjöllun um Usmani: „Hvers vegna þurfa allir múslimar að svara?“
  Mansoor Ahmad Malik, ímam og forstöðumaður Samfélags Ahmadiyya-múslima á Íslandi, gagnrýnir hlutverk mbl og blaðamannsins Stefáns E. Stefánssonar í ...
Hvað veistu um... Múmínálfana? - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 3
Hvað veistu um... Múmínálfana? - Vísir
Sögurnar gerast í Múmíndal, þar sem fjölskyldan býr í bláa múmínhúsinu og tekur jafnan vel á móti gestum. Múmínálfarnir hafa lifað góðu lífi í bókum, ...
Þau bjóða upp á fyrsta Bókakonfekt vetrarins
📅 05.11.2026 👁️ 2
Þau bjóða upp á fyrsta Bókakonfekt vetrarins
Bókakonfekt Forlagsins hefst í kvöld, fimmtudaginn 5. nóvember kl. 20 í bókabúð Forlagsins á Fiskislóð 39 og í streymi sem sjá má hér fyrir neðan.Bóka...
Second batch of Mandelson papers set to be published before Christmas
📅 05.11.2026 👁️ 2
Second batch of Mandelson papers set to be published before Christmas
Documents were published in March and June - but others were withheld because they were part of a police investigation.
Systkini deildu um arf eftir að faðir þeirra hafði freistað þess að gera soninn arflausan
📅 05.11.2026 👁️ 1
Systkini deildu um arf eftir að faðir þeirra hafði freistað þess að gera soninn arflausan
Erfðadeilur systkina enduðu fyrir Landsrétti eftir að faðir þeirra hafði reynt að gera son sinn arflausan.
Búnir að stafla þýfinu þegar eig­andinn kom heim - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 2
Búnir að stafla þýfinu þegar eig­andinn kom heim - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu í dag. Þar segir að frá fimm í morgun til fimm í dag hafi 121 mál verið skráð í kerfi lögreglunna...
Ítrekaðar athugasemdir frá Vinnueftirlitinu og íbúar orðnir langþreyttir
📅 05.11.2026 👁️ 2
Ítrekaðar athugasemdir frá Vinnueftirlitinu og íbúar orðnir langþreyttir
Vinnueftirlitið hefur gert ítrekaðar athugasemdir við frágang á byggingu hótelturnsins við Skúlagötu. Götur hafa verið lokaðar kringum byggingarstaðin...
California Gov Newsom commutes death sentences for all 548 people on death row
📅 05.11.2026 👁️ 2
California Gov Newsom commutes death sentences for all 548 people on death row
California has historically had the largest population of death row inmates in the US.
California Governor Gavin Newsom commutes sentences for state's 548 death row inmates
📅 05.11.2026 👁️ 2
California Governor Gavin Newsom commutes sentences for state's 548 death row inmates
California has historically had the largest population of people on death row in the US.
Golfarar njóta nóvemberblíðunnar
📅 05.11.2026 👁️ 2
Golfarar njóta nóvemberblíðunnar
Fyrstu vikur vetrar hafa verið nokkuð mildar víða um land. Norðlendingar njóta góðs af tíðinni og sinna bústörfum utandyra eða spila golf í blíðunni. ...
Rekstrargrundvelli Landbúnaðarháskólans ógnað
📅 05.11.2026 👁️ 2
Rekstrargrundvelli Landbúnaðarháskólans ógnað
Samkvæmt nýjum tillögum stendur framlag háskólaráðuneytisins aðeins undir 45 af hundraði áætlaðs rekstrarkostnaðar Landbúnaðarháskóla Íslands á móti t...
Vilja stytta lánstímann í 25 ár en mæta andstöðu úr ýmsum áttum
📅 05.11.2026 👁️ 1
Vilja stytta lánstímann í 25 ár en mæta andstöðu úr ýmsum áttum
Í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar er rætt um að draga þurfi úr vægi verðtryggingar og í húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem var kynntur fyr...
Melania Trump calls for lasting Ukraine truce as she hosts Russian and Ukrainian officials
📅 05.11.2026 👁️ 2
Melania Trump calls for lasting Ukraine truce as she hosts Russian and Ukrainian officials
The US first lady was credited by all for playing a key though unspecified role in the ceasefire.
Þau hlutu Hönnunarverðlaun Ís­lands - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 3
Þau hlutu Hönnunarverðlaun Ís­lands - Vísir
Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt í þrettánda skipti í veislusalnum Grósku. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum í samstarfi við ...
Meirihluti á framfærsluaðstoð borgarinnar með erlent ríkisfang
📅 05.11.2026 👁️ 2
Meirihluti á framfærsluaðstoð borgarinnar með erlent ríkisfang
Rúm 63% þeirra sem voru á framfærsluaðstoð Reykjavíkurborgar á síðasta ári eru með erlent ríkisfang.Þar af eru flestir Úkraínumenn. Þar á eftir koma P...
Sagði af sér rétt áður en hann var á­kærður fyrir embættisbrot - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 3
Sagði af sér rétt áður en hann var á­kærður fyrir embættisbrot - Vísir
Bankinn, sem heitir Ueno Bank, hefur fryst sparnað milljóna íbúa Paragvæ og í kjölfarið hafa fjölmargir mótmælt á götum landsins. Samkvæmt Reuters hef...
Aug­ljós­lega að undir­búa forsetaframboð - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 2
Aug­ljós­lega að undir­búa forsetaframboð - Vísir
J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna birti langa yfirlýsingu á samfélagsmiðlinum X þar sem hann sagði Íransstríðið vera ástæðu þess að Repúblikanar tö...
Bomb hoaxes: Messages reveal how threat was passed on by air traffic control
📅 05.11.2026 👁️ 1
Bomb hoaxes: Messages reveal how threat was passed on by air traffic control
BBC Verify has been analysing messages after flights across Europe were targeted by fake bomb threats - the second such incident this week.
Opnar sig um það hryllilega sem Playboy-kóngurinn vildi að hún gerði með tvíburasystur sinni
📅 05.11.2026 👁️ 2
Opnar sig um það hryllilega sem Playboy-kóngurinn vildi að hún gerði með tvíburasystur sinni
Tvíburasysturnar Karissa Shannon og Kristina bjuggu í tvö ár í Playboy-setrinu með stofnanda vörumerkisins, Hugh Hefner. Á þessum tíma reyndi Hefner í...
Brá sér á klósettið á Hvolsvelli – Þegar hann kom til baka var bíllinn horfinn
📅 05.11.2026 👁️ 1
Brá sér á klósettið á Hvolsvelli – Þegar hann kom til baka var bíllinn horfinn
Karlmanni, sem skrapp á salerni á bensínstöð á Hvolfsvelli, brá í brún þegar hann kom aftur út en þá hafði ferðafélagi hans ekið burt á bílnum hans. S...
Þrjátíu ár frá slysinu sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Guðmund Inga
📅 05.11.2026 👁️ 3
Þrjátíu ár frá slysinu sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Guðmund Inga
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður utan flokka, rifjaði upp alvarlegt umferðarslys sem hann lenti í fyrir nákvæmlega 30 áru...
Verktaki sem Kópavogsbær krefur um milljarða er í greiðslustöðvun
📅 05.11.2026 👁️ 2
Verktaki sem Kópavogsbær krefur um milljarða er í greiðslustöðvun
Kópa­vogs­bær sækir full­ar heimt­ur vegna van­efnda verk­taka við bygg­ingu Barna­skóla Kárs­ness. Svona hljóðaði yfirskrift fréttatilkynningar frá K...
Forsetinn segir af sér
📅 05.11.2026 👁️ 3
Forsetinn segir af sér
Forseti Paragvæ, Santiago Pena, hefur tilkynnt að hann segi af sér. Þetta gerir hann eftir að seðlabanki landsins tók stærsta banka landsins yfir. Um ...
Sprengjuhótun í tölvupósti til Hörpu
📅 05.11.2026 👁️ 2
Sprengjuhótun í tölvupósti til Hörpu
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa fékk sprengjuhótun í tölvupósti í dag. Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, staðfesti það í samtali við frétt...
British man with Ebola in DR Congo arrives in UK for treatment
📅 05.11.2026 👁️ 1
British man with Ebola in DR Congo arrives in UK for treatment
The UK government says there are "well-established procedures for dealing with cases like this" and the risk to the public remains low.
British doctor infected with Ebola in DR Congo being treated at London hospital
📅 05.11.2026 👁️ 2
British doctor infected with Ebola in DR Congo being treated at London hospital
The doctor tested positive in DR Congo, where there is an outbreak. The government says the risk to the public remains low.
Henry Nowak's killer has sentence increased to 25 years
📅 05.11.2026 👁️ 3
Henry Nowak's killer has sentence increased to 25 years
Judges ruled Vickrum Digwa's original term was unduly lenient and refused his bid to have it cut.
Má búast við að matvælaverð hækki á næstunni
📅 05.11.2026 👁️ 3
Má búast við að matvælaverð hækki á næstunni
Veðurfyrirbærið El Niño gæti valdið verulegum truflunum á landbúnaðarframleiðslu á næstu mánuðum. Þetta gæti orðið til þess að matvælaverð hækki til m...
Þorgerður Katrín styður Daða Má
📅 05.11.2026 👁️ 2
Þorgerður Katrín styður Daða Má
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar lýsti á Alþingi í dag yfir fullum stuðningi við Daða Má Kristófersson fjármála...
Táragasi beitt í Lyon - hundruð þúsunda mótmæla í Frakklandi
📅 05.11.2026 👁️ 2
Táragasi beitt í Lyon - hundruð þúsunda mótmæla í Frakklandi
Fjöldamótmæli voru boðuð í yfir 70 borgum í Frakklandi í dag. Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í nokkrum borgum.Verkalýðsfélagið CGT, sem er...
Russell Brand found guilty of rape and sexual assault
📅 05.11.2026 👁️ 2
Russell Brand found guilty of rape and sexual assault
Brand is told to expect a prison sentence "of some length" and faces more rape allegations, it can now be reported.
Inga máluð eins og dýr­lingur á kaffi­stofu kennara - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 3
Inga máluð eins og dýr­lingur á kaffi­stofu kennara - Vísir
Það kann að minna á einræðisríki að ráðherra sé sýndur í guðatölu. Og helgimyndadýrkun er heldur ekki leyfð undir lúterskri trú þjóðkirkjunnar. Engu a...