Gera má ráð fyrir að stríður straumur sakborninga liggi í Héraðsdóm Reykjavíkur þegar ákæra vegna fjársvika og peningaþvættis verður þingfest. 70 sæta ákæru fyrir að hafa haft fé af Landsbankanum og þvætta það.
„Þetta er einstakt mál að því er varðar fjölda ákærðra,“ segir Jóhannes Rúnar Jóhannsson dómstjóri. „Þetta kallar á skipulagningu sem við erum ekki vön.“
Jóhannes kannast ekki við mál með svona mörgum sakborningum fyrir utan stórt mál í Þingeyjarsýslum 1970. Þá voru 65 ákærðir eftir að Miðkvíslarstíflan efst í Laxá var sprengd. Miklar deilur höfðu staðið um framkvæmdina.
Fréttastofu er ekki kunnugt um sakamál þar sem jafn margir hafa sætt ákæru og að þessu sinni.
Þingfestingin fer fram í stærsta sal Héraðsdóms Reykjavíkur, sal 101, en henni verður streymt yfir í sal 102. Það er vegna þess að mun færri komast að í dómsal en sæta ákæru og eru verjendur þeirra þá ekki taldir með.
Vegna þess hversu margir sæta ákæru og verða að lýsa sig seka eða saklausa tekur þingfestingin öllu lengri tíma en venjulega. Alls eru teknir frá sex klukkutímar fyrir þingfestinguna.
Tveir eru ákærðir fyrir að hagnýta sér kerfisvillu hjá Reiknistofu bankanna í október í fyrra til að svíkja 95 milljónir út úr Landsbankanum. Fjórir til viðbótar eru ákærðir fyrir að útvega annað fólk til að þvætta féð. 64 eru ákærð fyrir að þvætta féð. Meðal ákærðu eru bæði Íslendingar og útlendingar sem búa á Íslandi.