Þóttist vera belgískur

KeflavíkurflugvöllurMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur
Héraðsdómur Reykjaness hefur birt fyrirkall í sakamáli gegn karlmanni vegna meintra brota á lögum um útlendinga. Málið verður tekið fyrir þriðjudaginn 16. júní.
Samkvæmt ákæru Lögreglustjórans á Suðurnesjum er maðurinn sakaður um að hafa haft í vörslum sínum grunnfalsað belgískt vegabréf, nafnskírteini og ökuskírteini þegar tollverðir höfðu afskipti af honum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar laugardaginn 9. nóvember 2024. Skjölin voru öll gefin út á nafnið Tom Maes.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.