Skil frá hægfara lægð mjakast yfir landið og henni fylgja suðlægar áttir og rigning með köflum. Hiti að 17 stigum í dag en aðeins 13 á morgun, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Hægfara lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu hjá okkur þessa dagana og skil frá henni mjakast nú austur yfir landið. Áttin verður því suðlæg í dag, víða gola eða kaldi og rigning með köflum, en lítilsháttar væta um landið norðaustanvert. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á morgun verður lægðin skammt norðvestur af landinu og beinir þá til okkar suðvestan- og vestanátt, yfirleitt kaldi eða stinningskaldi. Suðvestanáttinni fylgir óstöðugt loft, því má allvíða búast við skúradembum og hita á bilinu 7 til 13 stig, en á Austurlandi verður úrkomulítið og áfram milt.
Annað kvöld dregur úr vindi, og á föstudag er útlit fyrir fremur hæga vestlæga átt með einhverjum skúrum víða um land.