Kostnaður við innleiðingu símafrís í grunnskólum Reykjavíkurborgar gæti numið allt að 75 milljónum króna. Er þetta meðal annars kostnaður sem fellur til vegna skápa, hólfa, geymslukassa, eftirlits og verklags.
Þetta kemur fram í svari Steins Jóhannssonar, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs borgarinnar, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins.
Reykjavíkurborg hefur boðað símafrí sem tekur gildi í grunnskólum í haust auk þess sem mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum.
Allt að 50 milljónir fyrir skápa
Í svarinu við fyrirspurninni segir að borgin geri ráð fyrir að verulegur kostnaður geti fylgt því fyrir einstaka skóla að koma upp fullnægjandi aðstöðu fyrir geymslu tækja.
Áætlað er að innkaupsverð á skápum fyrir sjö þúsund farsíma sé á bilinu 25-50 milljónir króna. Byggir það mat annars vegar á upplýsingum sem komu fram á kynningarfundi mennta- og barnamálaráðuneytisins og hins vegar á upplýsingum á heimasíðum erlendra birgja.
Að auki gerir borgin ráð fyrir um 25 milljónum króna fyrir aðstöðu og uppsetningu skápa.
Samanlagt gæti heildarverkefnið kostað allt að 75 milljónum króna.