Arndís Bára Ingimarsdóttir, lögreglustjóri í Eyjum, staðfesti við Vísi um klukkan 23:30 að lögreglan hefði notið aðstoðar sérsvietar ríkislögreglustjóra vegna „yfirstandandi aðgerðar“. Frekari upplýsingar væri ekki unnt að veita að svo stöddu.
Tilefni aðgerðarinnar liggur ekki fyrir. Lögreglan hefur lokað fyrir umferð um Fífilgötu, þar sem aðgerðin stendur yfir.
Staðarmiðillinn Tígull segir að aðgerðin varði mann sem glími við andleg veikindi, sem er enn fremur sagður hafa verið ógnandi í framkomu og mjög sterkur.
Sérsveitarmenn voru samkvæmt heimildum Vísis fluttir af höfuðborgarsvæðinu til Vestmannaeyja með TF-Gná, einni af þyrlum Landhelgisgæslunnar, en hún tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 20.45 í kvöld eins og sjá má á flugkorti.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.
Fréttin hefur verið uppfærð.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.