Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem birtist í vísindaritinu Earth and Planetary Science Letters en greint var frá málinu í ScienceAlert í gær. Noé Le Becq við Háskólann í Nantes í Frakklandi leiddi rannsóknina í samstarfi við vísindamenn í Bern í Sviss og Háskólann í Arizona í Bandaríkjunum.
Á miðbreiddargráðum Mars eru margar ísríkar landmyndanir sem taldar eru vera jöklar sem þaktir eru urð og ryki.
Vísindamennirnir könnuðu gervihnattamyndir og rannsökuðu alls 738 gíga á svæðinu í kringum eldfjallið Alba Mons. Létu þeir búa til þrívíddarkort af gígunum og notuðu tölvulíkön til að endurgera hugsanlegar ísmyndanir.
Í 24 gígum og fimm sigdældum fundu þeir jökla sem snúa að norðurpóli Mars. Jöklarnir eru allt að þriggja kílómetra langir og geta verið hærri en 200 metrar við jökulsporðinn.
Rannsakendurnir telja að jöklar af þessu tagi hafi ekki verið skrásettir áður á Mars, en þeir eru einkum sérstakir hvað varðar jökulsporðana þar sem brún þeirra getur verið afar brött, í allt að 42 gráða halla. Í sporðunum telja rannsakendurnir að finna megi tvö lög, annars vegar úr grjóti og seti og hins vegar jökulinn sjálfan.
Jöklarnir eru taldir vera ísleifar sem söfnuðust fyrir á kaldara tímabili á Mars en hafa varðveist þar sem þeir liggja í skugga í norðurhlíðum gíga.
Vísindamennirnir benda á að svipur sé með marsnesku jöklunum og Grænavatnsjökli í Myrkárdal á Tröllaskaga. Lítið hefur verið skrásett um jökulinn en hann er þakinn urð.
Við vettvangsathugun komust rannsakendurnir að því að sporður Grænavatnsjökuls væri afar brattur og næði allt að 60 metra hæð. Þá mátti þar einnig finna tvö lög sambærileg þeim sem sjást í jökulsporðunum á Mars.
Aftur á móti rennur leysingavatn úr sporðinum á Grænavatnsjökli og myndar rásir en það gerist ekki á Mars. Þá fundust einnig sprungumynstur í efra lagi jöklanna á Mars sem ekki fundust í Grænavatnsjökli.
„Engu að síður kann þetta svæði að vera ein nánasta hliðstæða á jörðinni sem fundist hefur hingað til við þær ísmyndanir á Mars sem lýst er í þessari rannsókn,“ skrifa rannsakendurnir um Grænavatnsjökul.