Fjórum sérlega verðmætum listaverkum frá endurreisnartímabilinu var rænt frá listasafni í Messina á Sikiley á laugardag. Verkin eru eftir listamanninn og heimamanninn Antonello da Messina og eru frá 14. öld og talin meðal hans merkilegustu verka.
Þrjú verkanna eru hluti af sex veggspjöldum sem saman mynduðu altaristöflu í San Gregori-klaustrinu. Fjórða verkið sem þjófarnir rændu var stakt verk með málverk á báðum hliðum. The Guardian segir að ránið hefði geta verið enn stærra, en af einhverri undarlegri ástæðu skildu þjófarnir eftir tvö veggspjöld úr altaristöflunni fyrir utan safnið.
Verðmæti listaverkanna hefur ekki verið gefið upp en nýverið keypti ítalska ríkið verkið Ecce Homo eftir da Messina á uppboði í New York fyrir tæpar 13 milljónir evra, eða 1,8 milljarða íslenskra króna.
Borgarstjóri Messina, Federico Basile, segir þjófnaðinn ámælisverðan en einnig sorglegan því hann átti sér stað þegar mikil hátíðarhöld stóðu yfir í borginni vegna Ferragosto, eða á Maríumessu hinni fyrri.
Listaverkaþjófnaðir eru algengir á Ítalíu. Ítalska lögreglan greindi frá því fyrr í vikunni að þeim hafi tekist að hafa uppi á þremur listaverkum eftir Renoir, Cezanne og Matisse sem var rænt af safni í Parma á Norður-Ítalíu í mars af glæpagengi. Þau verk eru metin á yfir 1,2 milljarða íslenskra króna.