Hópur vísindamanna frá Veðurstofu Íslands og Háskólanum í Gautaborg lauk mælingum við Öskju á dögunum. Landris mælist ekki en merki eru um landsig. Land tók að rísa í Öskju árið 2021 og vel hefur verið fylgst vel með síðan
„Þetta er í sjálfu sér bara þannig séð mjög eðlilegur hlutur hvernig eldstöðvar geta hagað sér. Sú óvissa sem er þegar hefst svona landris er alltaf um hversu lengi verður þetta landris,“ segir Ingibjörg Andrea Bergþórsdóttir náttúruvársérfæðingur á Veðurstofu Íslands. Hún segir að þegar landris hefst sé ómögulegt að segja til um hvað gerist næst. Landrisið geti leitt til kvikuhlaups og kvikuhlaup geti síðan leitt til eldgoss. Landris geti líka stöðvast og landið byrjað að síga, eins og staðan er í Öskju: „Og nú er það að raungerast, landrisið hefur bara stöðvast,“ segir Ingibjörg.
Viðvörunarstigið er núll
Askja er eldstöð í Dyngjufjöllum um 30 kílómetra norðan Vatnajökuls. Hún gaus átta sinnum á 20. öld, síðast árið 1961. Það gos stóð í fimm til sex vikur. Ingibjörg segir að þetta landris hefði getað endað með gosi því Askja hefur gosið að meðaltali tvisvar til þrisvar sinnum á öld. Þegar land tók að rísa 2021 var viðvörunarstig vegna eldsumbrota hækkað en hefur það nú verið lækkað.
„Í ljósi þessa var viðvörunarstig eldstöðvarinnar, svokallað VALS stig, fært aftur frá einum niður á núll sem þýðir í rauninni að það fer úr stigi sem að er um aðeins aukna virkni umfram bakgrunnsvirkni niður í núll, sem er engin aukin virkni heldur bara venjuleg bakgrunnsvirkni,“ segir Ingibjörg.