Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir helsta muninn á milli covid-19 og hantaveirunnar að smitleiðirnar séu mjög ólíkar. Þó að veiran geti smitast á milli fólks er talið þurfa mikla nánd og samveru til þess að smit berist.
Þrír eru látnir eftir nýlega útbreiðslu veirunnar í skemmtiferðaskipinu MV Hondius. Minnst fimm til viðbótar eru smituð af veirunni.
Guðrún bendir einnig á að þegar covid-19 útbreiðslan hófst vissi enginn neitt um veiruna, en hantaveiran sé þekkt veira. „Smitleiðirnar eru þekktar og þær eru aðallega frá nagdýrum en ekki á milli fólks, þó að það geti gerst eins og með þetta eina afbrigði sem þarna er í gangi.“
Enn sé stutt síðan heimurinn gekk í gegnum heimsfaraldur og því ekki óeðlilegt að fólk finni fyrir ónotatilfinningu.
Hún segir þetta vera ólíkt, þar sem þetta sé hópsýking í einu skipi og því ekki talið vera faraldur að svo stöddu. „En vissulega er þetta alvarlegt ástand og fyrir það fólk sem lendir í þessu auðvitað alls ekkert grín.“
Guðrún segir fólk ekki þurfa að breyta sínum daglegu venjum eða ferðaáætlunum vegna hantaveirunnar. Hún segir að fólk eigi að meta sínar aðstæður út frá því hvert það sé að fara.
Í spilaranum hér að neðan má horfa á umfjöllun sjónvarpsfrétta um hantaveiruna sem endar á viðtali við sóttvarnalækni.