Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir ekki lengur þurfa að grípa ítrekað í neyðarhemla því engin bið sé eftir fíkni- og hegðunarmeðferð fyrir börn. Nýtt meðferðarheimili að Lækjarbakka í Gunnarsholti var opnað í dag.
„Þessum tíma er lokið. Þessum ófremdartíma,“ sagði ráðherra við opnunarathöfnina í dag
Fyrir drengi og kynsegin
Á heimilinu er pláss fyrir sex og nú dvelur þar einn. „Þessi meðferð er ætluð drengjum og kynsegin einstaklingum á aldrinum 13-18 ára. Sem eru með alvarlegan vímuefnavanda eða ofbeldisbrot í sinni sögu. Hegðunarerfiðleika og slíkt,“ segir Dögg Þrastardóttir félagsráðgjafi og forstöðumaður Lækjarbakka.
Mikil áhersla er lögð á virkni í námi og vinnu og að sex mánaða meðferð lokinni býðst eftirmeðferð
Gjörbreytt staða
Mennta- og barnamálaráðherra segir stöðuna í málaflokknum gjörbreytta. „Það er ekki eitt einasta barn á bið í dag eftir meðferðarúrræði. Hvorki er lýtur að hegðunarúrræði eða vímuefnavanda,“ segir hún.
Það er meðal annars vegna aukinnar áherslu á önnur meðferðarúrræði. Staðan var nokkuð önnur fyrir ekki svo löngu síðan þegar foreldrar sendu börn sín í meðferð til annarra landa vegna þess að þau komust ekki að hér.
Engin þörf á neyðarhemlinum
„Við getum samið við einhverja til að vera með eitthvert öryggi ef eitthvað bregður út af, þannig að við lendum ekki í því að hafa ekki úrræði ef við lendum í einhverjum erfiðleikum,“ segir Inga. „Og að við þurfum ekki að grípa í neina neyðarhemla, heldur höfum við aðstöðuna fyrir börnin okkar hérna heima.“
Talsverðum erfiðleikum var háð að finna starfseminni stað, meðal annars kröfðust íbúar sveitarfélagsins að leyfi til að breyta húsinu yrði fellt úr gildi. Ráðherra segir það sorglegt.
„Það eru fordómar í samfélaginu,“ segir hún.
Eðlilegur partur af meðferðinni
Þó heimilið hafi verið formlega opnað í dag, komu fyrstu drengirnir þangað í byrjun mars. Fljótlega eftir það var greint frá stroki af heimilinu. „Þetta er kannski svolítið eðiliegur partur af meðferðinni. Við erum opið úrræði og höfum ekki heimildir til að þvinga einstaklinga ef þeir vilja fara frá okkur,“ segir Dögg.
„Ég er ofurstolt af stöðunni eins og hún er í dag,“ segir Inga. „Og finnst aðdáunarvert hvað hratt og vel okkur hefur tekist að bregðast við því ófremdarástandi sem var að ríkja um tíma í samfélaginu hvað lýtur að börnum.“