Donald Trump Bandaríkjaforseti er ekki af baki dottinn þrátt fyrir að Íranar séu að eigin sögn búnir að loka Hormússundi. Hann segir að Bandaríkin muni taka sundið yfir og innheimta þóknun fyrir að sjá um það. Þá myndu Bandaríkjamenn aftur stöðva umferð um íranskar hafnir.
Trump ræddi fyrst um yfirtökuna í símaviðtali á sjónvarpsstöðinni Fox, án þess að útskýra hvernig hún færi fram. Hann sagði eftir það á Truth social að Hormússund væri opið, þrátt fyrir að gögn bendi til þess að umferð um sundið hafi minnkað verulega. Íranar lýstu yfir lokun sundsins í gær. „Við komum aftur á hafnbanninu á Íran, sem heitir því nafni því það kemur aðeins í veg fyrir að írönsk skip geti komið og farið,“ sagði Trump.
Hann segir að öll önnur lönd megi nýta sér sundið og Bandaríkin verði héðan í frá verðir Hormússunds. Bandaríkin myndu rukka öll skip um sem nemur 20% af öllum farmi sem færi um sundið, til að ná inn fyrir kostnaði við að halda sundinu öruggu. Stjórnvöld höfðu áður sagt að ekkert land ætti að greiða fyrir að sigla á alþjóðlegu hafsvæði. Það stangaðist á við alþjóðalög.
Langar samningaviðræður um helgina
Ekki kemur fram í færslunni hvernig Trump ætlar að ná stjórn á sundinu eða innheimta þessa fjárhæð. Íranar hafa stjórnað umferð um Hormússundið meira og minna frá því stríð þeirra og Bandaríkjanna hófst í lok febrúar en fyrir stríðið hafði það verið opið fyrir flutninga. Sundið var meira og minna lokað fyrir umferð mánuðum saman sem leiddi af sér hækkun olíuverðs.
Herstjórnin í Íran brást við með því að segja að Bandaríkjunum yrði ekki leyft að skipta sér af flutningum á olíu og gasi og varaði nágrannaríki sín við Persaflóa við að starfa með bandarískum yfirvöldum.
Trump sagði á Fox að langar samningaviðræður hefðu verið í gær um frið, en samningamenn Írana hefðu gengið á bak orða sinna frá því á laugardag. Hann útskýrði það ekki nánar. Íranar segjast enn vera í samtali við samningamenn frá Katar, Pakistan og Óman til að reyna að koma í veg fyrir frekari stigmögnun stríðsins.